
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra staðfesti í samtali við Arnþrúði Karlsdóttur í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu að íslenska ríkið muni taka til fullra varna í dómsmáli Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna bókunar 35 við EES-samninginn. Ríkisstjórnin ætlar jafnframt að ljúka innleiðingu bókunar 35. Kristrún varaði við því að Ísland gæti fengið óhagstæðari niðurstöðu með því að láta dómsmálið ganga alla leið án þess að ljúka málinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Lagabreytingar stöðva ekki endilega málsóknina
Arnþrúður spurði hvort ríkisstjórnin hygðist taka til fullra varna fyrir Íslands hönd eða viðurkenna samningsbrot í málinu sem ESA hefur höfðað gegn ríkinu.
Kristrún svaraði því afdráttarlaust að ríkisstjórnin myndi gæta hagsmuna Íslands fyrir dómi. Jafnframt væri stefnt að því að ljúka innleiðingu bókunar 35 þrátt fyrir málaferlin hjá EFTA -dómstólnum.
Hún benti á að þótt Alþingi samþykkti nauðsynlegar lagabreytingar væri ekki tryggt að ESA félli frá málsókninni. Ríkisstjórnin myndi því fá öfluga sérfræðinga til að annast málareksturinn ef hann héldi áfram.
Varar við verri niðurstöðu fyrir EFTA dómstólnum
Arnþrúður rifjaði upp að við gerð EES-samningsins hefðu Íslendingar og ESB verið sammála um ákveðna útfærslu á bókun 35 með sérstökum lögum um evrópska Efnahagssvæðið á árinu 1993. Hafi verið tekið tillit til ákvæða íslensku stjórnarskrárinnar sem hefði ekki heimilað frekara framsal valds en kemur fram í þeim lögum sem hefðu nú verið í gildi í 33 ár. Hún spurði hvers vegna ríkisstjórnin teldi nauðsynlegt að ljúka innleiðingu bókunar 35 áður en dómur yrði kveðinn upp í málinu.
Kristrún hafnaði því að verið væri að flýta málinu. Hún sagði það hafa verið til meðferðar í 15–16 ár og fyrri ríkisstjórnir hefðu einnig reynt að ljúka því.
Hún varaði við því að ef Ísland tapaði dómsmálinu gæti niðurstaðan orðið óhagstæðari fyrir íslenska ríkið og almenning en ef málið yrði leyst með þeim lagabreytingum sem ríkisstjórnin legði til.
Kristrún hafnaði jafnframt því að innleiðing bókunarinnar bryti gegn stjórnarskrá Íslands.
Hafnar því að ESB-lög fái sjálfkrafa forgang
Kristrún sagði misskilnings gæta í umræðunni um bókun 35 og hafnaði því að innleiðing hennar fæli í sér að löggjöf Evrópusambandsins öðlaðist sjálfkrafa gildi á Íslandi.
Hún útskýrði að bókun 35 snerist um reglur sem hefðu þegar farið í gegnum þinglega meðferð, verið samþykktar af Alþingi og orðið að íslenskum lögum.
Ef ósamræmi kæmi upp milli slíkra laga og eldri íslenskra laga ættu nýrri lögin að gilda samkvæmt þeirri útfærslu sem ríkisstjórnin stefndi að.
Kristrún sagði því ekki rétt að halda því fram að löggjöf frá Evrópusambandinu gæti öðlast forgang hér á landi án samþykkis Alþingis.
Segir réttindi íslenskra neytenda í húfi
Forsætisráðherra sagði meginmarkmið breytinganna vera að tryggja réttindi íslenskra neytenda samkvæmt reglum EES-samningsins.
Hún sagði ósamræmi milli íslenskra laga geta leitt til þess að Íslendingar nytu ekki sömu réttinda og neytendur annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu.
Að hennar sögn snerist innleiðing bókunar 35 því ekki um að veita Evrópusambandinu aukin völd á Íslandi heldur að tryggja að réttindi sem Alþingi hefði þegar samþykkt næðu fram að ganga.
Arnþrúður spurði að lokum hvort ríkisstjórnin gæti undir einhverjum kringumstæðum fallist á að Ísland hefði brotið gegn skuldbindingum sínum og viðurkennt það fyrir dómi.
Kristrún tók ekki undir að slíkt væri fyrirhugað. Hún sagði ríkisstjórnina geta lokið lagabreytingunum samhliða því að standa vörð um íslenska hagsmuni í dómsmálinu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
