Ísland og Noregur fjármagna kaup á tveimur milljónum skammta af bóluefni

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í samkomulagi sem Norðmenn hafa gert um þátttöku í samstarfi ríkja um að tryggja öllum þjóðum aðgang að bóluefni við COVID-19 (COVAX). Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að Noregur og Ísland leggi í sameiningu fé til verkefnisins sem gerir kleift að fjármagna kaup á allt að tveimur milljónum bóluefnaskammta fyrir lágtekjuþjóðir.

Þá segir í tilkynningunni að þátttaka Íslands og Noregs sé liður í samstarfi Evrópuþjóða þar sem aðildarríki Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins leggja sitt af mörkum til að uppfylla það mikilvæga markmið að öllum þjóðum heims verði tryggður aðgangur að bóluefni, óháð efnahag. Framlag Íslands og Noregs til verkefnisins hljóðar upp á sjö milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 967 milljóna króna, sem jafngildir tveimur milljónum skammta af bóluefni. Þar af standa íslensk stjórnvöld straum af fjármögnun á 100.000 bóluefnisskömmtum.

Á fordæmalausum tímum sem þessum skiptir samvinna og samstaða þjóða öllu máli. Það er hagur allra að þjóðir heims standi saman og að þau ríki sem betur standa styðji við bakið á þeim sem verr standa að vígi. Við verðum að tryggja að ekkert ríki standi berskjaldað í baráttunni við COVID-19 og því er gott að sjá þessa samstöðu í verki“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Kórónuveiran fer ekki í manngreinarálit og þess vegna er það réttlætismál að allir jarðarbúar hafi tryggan aðgang að öruggu og skilvirku bóluefni þegar þar að kemur. Það er jafnframt í þágu okkar allra að kórónuveiran verði kveðin niður sem allra fyrst alls staðar og því leggjum við að sjálfsögðu okkar af mörkum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila