Ísland stendur vel í stafrænni menntun en skortir skýra stefnu og gæðaviðmið

Ísland stendur vel að vígi hvað varðar nettengingar og aðgengi grunnskólanemenda að stafrænum tækjum, en sérstaka landsstefnu um stafræna menntun skortir. Þá höfðu ekki verið sett miðlæg gæðaviðmið um nýtingu stafrænnar tækni í grunnskólum þegar alþjóðleg úttekt fór fram árið 2025. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Eurydice um stafræna menntun í evrópskum skólum. Þetta segir í tilkynningu frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Skýrslan, Digital Education at School in Europe 2026, byggist á upplýsingum frá 38 evrópskum menntakerfum og niðurstöðum alþjóðlegu ICILS-rannsóknarinnar frá árinu 2023. Hún fjallar meðal annars um aðgengi nemenda að tækni, stafræna hæfni, menntun kennara og hvernig stafræn tækni er nýtt við kennslu.

Ísland meðal fjögurra menntakerfa sem tryggja nettengingar til heimanáms

Samkvæmt skýrslunni er Ísland eitt fjögurra menntakerfa í Evrópu þar sem stuðningur við nettengingar vegna heimanáms er tryggður á landsvísu.

Íslensk lög um grunnskóla tryggja jafnframt að nemendur fái nauðsynleg námsgögn og tæki án endurgjalds.

Þessi atriði skipa Íslandi í góða stöðu hvað varðar aðgengi nemenda að stafrænum búnaði.

Hins vegar er bent á að ábyrgð á grunnskólastarfi sé dreifð milli ríkis og sveitarfélaga og að ekki hafi verið mótuð sérstök heildarstefna um stafrænt menntakerfi.

Þá skorti miðlæg gæðaviðmið um stafræna menntun í grunnskólum þegar upplýsingum fyrir skýrsluna var safnað um mitt ár 2025.

Stafræn hæfni kennd í nær öllum Evrópuríkjum

Stafræn hæfni er nú hluti af námskrá á unglingastigi í nær öllum þeim menntakerfum sem skýrslan tekur til.

Algengast er að kennsla í stafrænni hæfni sé samþætt mörgum námsgreinum.

Í um þremur af hverjum fjórum menntakerfum er jafnframt boðið upp á sérstaka námsgrein þar sem áhersla er lögð á stafræna færni.

Á Íslandi er gert ráð fyrir að stafræn hæfni nemenda þróist frá grunnskólaaldri, en einstakir skólar ákveða sjálfir í hvaða árgöngum kennslan fer fram.

Skýrslan sýnir jafnframt að félagsleg og efnahagsleg staða nemenda hefur áhrif á stafræna hæfni þeirra og möguleika til að nýta tæknina við nám utan skóla.

Skortur á búnaði og tæknilegum stuðningi í evrópskum skólum

Þótt flest evrópsk menntakerfi hafi mótað stefnu um stafræna menntun er innleiðing hennar mislangt komin.

Aðgengi að tölvum og öðrum stafrænum búnaði er mismunandi milli landa og skóla. Nettengingar eru ekki alls staðar nægilega stöðugar og víða skortir tæknilega aðstoð við kennara.

Þá kemur fram að mörg menntakerfi hafi ekki komið á nægilega markvissu mati á því hvort fjárfestingar í stafrænni tækni og innleiðing nýrrar stefnu skili sér í bættri kennslu og námsárangri.

Rannsakendur leggja áherslu á að aðgangur að búnaði einn og sér tryggi ekki árangursríka stafræna menntun.

Kalla eftir skýrari kröfum um stafræna hæfni kennara

Í umfjöllun skýrslunnar um Ísland er bent á þörfina fyrir skýrari viðmið um stafræna hæfni kennara og hvernig þeir nýta tæknina við kennslu.

Áhersla er lögð á að slík viðmið nái til allra skólastiga.

Í nóvember 2025 voru gefin út ný gæðaviðmið um innra og ytra mat framhaldsskóla hér á landi. Þar er meðal annars fjallað um nýtingu stafrænnar tækni í skólastarfi.

Sambærileg ákvæði eru fyrirhuguð í gæðaviðmiðum fyrir grunnskóla sem stendur til að kynna til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

Þá er gert ráð fyrir að nýting stafrænnar tækni verði hluti af aðgerðum í þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu fyrir árin 2027–2030 og aðgerðaáætlun um gervigreind fyrir árin 2025–2027.

Engar samanburðarhæfar mælingar á stafrænni hæfni íslenskra nemenda

Ísland tók ekki þátt í alþjóðlegu ICILS-rannsókninni árið 2023, sem er ein af meginstoðum Eurydice-skýrslunnar.

Af þeim sökum liggja ekki fyrir sambærilegar niðurstöður um stafræna hæfni íslenskra nemenda og nemenda í öðrum þátttökuríkjum.

Einnig vantar samanburðarhæfar upplýsingar úr rannsókninni um aðstæður í íslenskum skólum og hvernig kennarar nýta stafræna tækni við kennslu.

Þótt Ísland standi vel hvað varðar aðgengi að tækjum og nettengingum er því ekki hægt að draga af skýrslunni ályktanir um hvort stafræn hæfni íslenskra nemenda sé meiri eða minni en jafnaldra þeirra í öðrum Evrópuríkjum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila