
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Pétur Zimsen, þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóra í síðdegisútvarpinu, um mikið fall Íslands í PISA milli áranna 2018 og 2022. Jón Pétur sagði íslenska nemendur hafa tapað um 40 PISA-stigum á tímabilinu sem samsvari um tveimur skólaárum. Hann vakti jafnframt athygli á því að Norðurlönd væru nú að stíga til baka frá skjávæðingu skóla og færa bækur aftur inn í kennsluna. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Mesta fallið þrátt fyrir opnari skóla
Jón Pétur sagði hrunið milli 2018 og 2022 sérstaklega athyglisvert vegna heimsfaraldursins. Íslenskir skólar hefðu verið opnari en skólar víða annars staðar og börn því haft meiri möguleika á að hitta kennara sína, viðhalda félagslegum tengslum og halda reglu í daglegu lífi.
Í mörgum öðrum ríkjum hefðu skólar verið lokaðir lengi. Þrátt fyrir það varð mjög mikið fall á Íslandi og sagði Jón Pétur að það hefði fengið alltof litla athygli.
Norðurlönd endurskoða skjávæðinguna
Jón Pétur sagði viðbrögðin á öðrum Norðurlöndum meðal annars felast í því að endurskoða innleiðingu skjáa og iPada í skólastarfi. Að hans sögn var skjávæðing víða innleidd án nægilegra vísindalegra gagna um áhrif hennar. Nú væri verið að stíga ákveðið til baka og færa bækur aftur inn í skólastofurnar.
Hann benti jafnframt á að tæknifyrirtæki hefðu gríðarlega fjárhagslega hagsmuni af skjávæðingu skólakerfa enda væru skólarnir stórir viðskiptavinir.
Styður símalausa skóla
Jón Pétur styður símalausa skóla þótt hann segi það aðeins lítið skref í samanburði við þær kerfisbreytingar sem þurfi að gera. Hann hefði viljað útfæra símafrelsið með öðrum hætti og nýta betur reynslu skólanna við innleiðinguna.
Meginatriðið væri engu að síður að losa börnin meira frá skjánum. Hann tengdi það einnig við félagsfærni íslenskra barna sem mælist að hans sögn ekki nægilega góð.
Jón Pétur sagði færni ekki verða til án þjálfunar. Það ætti við um lestur, ritun, félagsfærni og íþróttir. Börn þyrftu að æfa sig í samskiptum rétt eins og þau þyrftu að æfa lestur og skrift.
Skjánotkun barna er vanræksla
Jón Pétur sagði það skýrt að sínu mati að það væri vanræksla að láta barn sitja við skjá þar sem foreldrið væri þá ekki að sinna hlutverki sínu.
Í staðinn ættu foreldrar, afar, ömmur og aðrir sem umgangast börn að verja tíma með þeim, tala við þau og lesa fyrir þau. Hann lýsti samveru, lestri og samtali sem innstæðu sem yxi með barninu og yrði aldrei frá því tekin.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
