
Öll 32 aðildarríki Atlantshafsbandalagsins tóku nýverið þátt í varnaræfingunni STEADFAST DETERRENCE 2026 sem fram fór í stjórnstöðvum bandalagsins víðsvegar um Evrópu og Norður-Ameríku. Um átta þúsund manns tóku þátt í æfingunni sem nú var haldin í þriðja sinn.
Æfingin var skipulögð af varnaræfingasetri NATO, Joint Warfare Centre í Stafangri í Noregi, og er ein af lykilæfingum bandalagsins til að virkja varnaráætlanir þess og æfa viðbragðsgetu.
Þorgerður segir mikilvægt að Ísland taki virkan þátt
Í æfingunni var lögð áhersla á að samhæfa hernaðaraðgerðir, upplýsingamiðlun og viðbrögð við fjölþáttaógnum, þar á meðal upplýsingaóreiðu og netógnum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir mikilvægt að Ísland taki virkan þátt í æfingum af þessu tagi.
„Það er gríðarlega mikilvægt að við látum ekki okkar eftir liggja og tökum virkan þátt í æfingu sem þessari, enda er þátttaka okkar mikilvægur liður í öflugu samstarfi okkar við Atlantshafsbandalagið og eflir um leið sameiginlegar varnir og öryggi bandalagsins á Norður-Atlantshafi,“ segir hún.
Norðurlandasamstarf stór þáttur
Að þessu sinni tók æfingin til allra herstjórna NATO, þar á meðal nýjustu herstjórnar bandalagsins í Norfolk í Bandaríkjunum, en öll Norðurlöndin heyra nú undir þá herstjórn. Sérfræðingar frá varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins tóku þátt í æfingunni bæði í Stafangri og hjá æðstu herstjórn NATO, SHAPE, í Mons í Belgíu. Þá komu einnig að æfingunni sérfræðingar frá Landhelgisgæslu Íslands, embætti ríkislögreglustjóra og netöryggisveit íslenskra stjórnvalda, CERT-IS.
Auk þess tóku fimm Íslendingar sem starfa innan herstjórna NATO þátt í æfingunni.
