Ísland ver mun meira til menntamála en OECD-ríkin en kennslustundir færri

Ísland ver mun meira opinberu fé til menntamála en OECD-ríkin að meðaltali og kennurum hefur fjölgað mun meira en nemendum undanfarinn áratug. Þrátt fyrir það verja íslenskir kennarar færri klukkustundum í beina kennslu en kennarar í OECD-ríkjunum að meðaltali, sérstaklega í framhaldsskólum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, Education at a Glance 2026, sem birt var í gær.

Opinber útgjöld til menntunar á Íslandi nema 5,2% af vergri landsframleiðslu en meðaltal OECD-ríkjanna er 4%.

Kennurum fjölgaði um 16% en nemendum um 6%

Stöðugildum kennara í íslenskum grunnskólum fjölgaði um 16% frá 2015 til 2024 á sama tíma og nemendum fjölgaði um 6%.

Svipaða þróun má sjá annars staðar innan OECD en þar fjölgaði kennurum að meðaltali um 13% og nemendum um 2%.

Á leikskólastigi er munurinn enn meiri hér á landi. Börnum fækkaði um 5% frá 2015 til 2024 en leikskólakennurum fjölgaði um 12%. Börnum á hvern kennara fækkaði því um 16%.

Þrátt fyrir þessa þróun segir OECD kennaraskort hafa áhrif á flest menntakerfi aðildarríkjanna. Erfiðast reynist víða að manna kennarastöður í dreifbýli og á svæðum sem standa höllum fæti og skorturinn er sérstaklega mikill í stærðfræði og náttúruvísindum.

Mun færri kennslustundir á Íslandi

Íslenskir kennarar verja minni hluta vinnutíma síns í beina kennslu en kennarar í OECD-ríkjunum að meðaltali.

Á Íslandi kenna kennarar á yngra stigi grunnskóla að meðaltali 624 klukkustundir á ári. Meðaltal OECD er 770 klukkustundir.

Á unglingastigi eru kennslustundirnar einnig 624 á ári hér á landi en 710 að meðaltali innan OECD.

Munurinn er mestur í framhaldsskólum. Þar er samningsbundinn kennslutími íslenskra kennara að meðaltali 480 klukkustundir á ári en 667 klukkustundir innan OECD.

Íslenskir framhaldsskólakennarar kenna samkvæmt því að meðaltali 187 klukkustundum minna á ári en starfsbræður þeirra innan OECD.

Verja tæplega 20.000 dollurum á hvern nemanda

Opinber útgjöld frá grunnskóla til háskóla námu 19.675 Bandaríkjadölum á hvern nemanda á Íslandi árið 2023 þegar leiðrétt hefur verið fyrir kaupmætti.

Meðaltal OECD var 13.599 dollarar.

Munurinn er sérstaklega mikill í grunnskólum. Á yngra stigi grunnskóla var varið 20.889 dollurum á hvern nemanda á Íslandi en OECD-meðaltalið var 12.893 dollarar.

Á unglingastigi var kostnaðurinn 20.973 dollarar hér á landi en 14.275 dollarar að meðaltali innan OECD.

Í verk- og starfsnámi framhaldsskóla var varið 20.147 dollurum á hvern nemanda á Íslandi samanborið við 13.901 dollar að meðaltali innan OECD.

19% ungs fólks aðeins með skyldunám

Skýrslan sýnir jafnframt að 19% Íslendinga á aldrinum 25–34 ára hafa ekki lokið námi umfram skyldunám.

Meðaltal OECD er 12%.

Hlutfallið hefur þó lækkað verulega hér á landi. Árið 2015 voru 27% fólks í þessum aldurshópi án menntunar umfram skyldunám.

Á sama tíma hafa 44% Íslendinga á aldrinum 25–64 ára lokið háskólamenntun, sem er svipað og 43% meðaltal OECD-ríkjanna.

Fáir ungir Íslendingar hvorki í námi né vinnu

Ísland sker sig hins vegar jákvætt úr þegar horft er til ungs fólks sem er hvorki í námi né vinnu.

Árið 2025 voru 5% fólks á aldrinum 18–24 ára á Íslandi hvorki í námi né vinnu. Meðaltalið innan OECD var 13%.

Þátttaka barna í leikskólastarfi er einnig meiri hér á landi. Árið 2024 voru 96% barna frá 3 ára aldri og fram að upphafi grunnskóla skráð í leikskóla en meðaltal OECD var 90%.

Niðurstöður OECD sýna þannig að Ísland ver hlutfallslega miklu fé til menntakerfisins og kennurum hefur fjölgað hraðar en nemendum, en samningsbundinn tími sem kennarar verja í beina kennslu er umtalsvert styttri en að meðaltali í OECD-ríkjunum.

Smelltu hér til þess að lesa skýrsluna

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila