Íslendingar í Berlín beðnir um að láta aðstandendur vita af sér

berlinlogreglaMannskæð hryðjuverkaárás var gerð á jólamarkað í Berlín fyrr í kvöld. Í tilkynningu sem utanríkisráðuneytið sendi frá sér í kvöld vegna málsins hvetur ráðuneytið alla Íslendinga í Berlín sem ekki hafa látið aðstandendur vita af sér að gera það hið fyrsta en fjölmargir Íslendingar eru búsettir í borginni, auk þess sem margir ferðamenn eru þar að jafnaði. Þá hvetur ráðuneytið Íslendinga í Berlín til að nýta sér samfélagsmiðla til að láta vini og ættingja vita að þeir séu óhultir. Borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins hafa ekki borist neinar upplýsingar sem gefa til kynna að Íslendingar hafi orðið fyrir árásinni í kvöld.
Þá kemur fram í tilkynningunni að borgaraþjónustan sé í beinu sambandi við neyðarteymi þýsku stjórnsýslunnar, sem sett er á fót við atburði sem þessa, og tekur saman upplýsingar um fórnarlömb árásarinnar. Ráðuneytið hvetur einnig alla Íslendinga sem eru á svæðinu að fylgjast vel með tilmælum yfirvalda á staðnum. Sem stendur er fólk beðið um að vera ekki að vera á ferli að óþörfu og halda sig á öruggum stöðum.
Ef aðstandendur á Íslandi hafa áhyggjur af fólki sem vitað er að er á svæðinu og ná ekki sambandi við það, eru þeir hvattir til að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 5459900.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila