Íslendingar tóku þátt í stærstu netöryggisæfingu heims

Hópur íslenskra netöryggissérfræðinga tók nýverið þátt í netöryggisæfingunni Skjaldborg 2026, eða Locked Shields 2026, sem er stærsta netöryggisæfing heims. Æfingin fór fram dagana 13. til 24. apríl og tóku rúmlega 4.000 þátttakendur frá 41 landi þátt. Í tilkynningu segir að þátttakendur mynduðu alls 16 fjölþjóðleg lið sem kepptu sín á milli. Ísland var í sameiginlegu liði með Noregi og Atlantshafsbandalaginu. Þetta er í fjórða sinn sem Ísland tekur þátt í æfingunni sem haldin er árlega á vegum netvarnarseturs NATO, Cooperative Cyber Defence Centre of Excellence.

Sérfræðingar frá 10 íslenskum aðilum

Íslenski hópurinn samanstóð að þessu sinni af 17 sérfræðingum frá 10 opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum. Þar á meðal voru sérfræðingar frá Reiknistofu bankanna, Íslandsbanka, Arion banka, Varist, Keystrike, Syndis, Seðlabanka Íslands, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Heilbrigðisstofnun Austurlands auk CERT-IS og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir þátttökuna mikilvægan þátt í að efla netvarnir Íslands og styrkja samstarf opinberra aðila og einkageirans við vernd mikilvægra innviða landsins. Hún segir sérstaklega mikilvægt á tímum aukinna alþjóðlegra spennu að Ísland hafi getu til að mæta netógnum og öðrum áskorunum.

Líkja eftir stórfelldum netárásum

Æfingin fer fram í raunsæju sýndarumhverfi þar sem liðin verja skáldað ríki, gegn umfangsmiklum netárásum á mikilvæga innviði á borð við orku-, veitu- og fjarskiptakerfi.

Auk tæknilegra verkefna þurfa þátttakendur að takast á við upplýsingaóreiðu, lagaleg álitaefni tengd átökum og skipulagða upplýsingagjöf.

Fram kemur í tilkynningunni að þátttakan styrki jafnframt alþjóðlegt samstarf Íslands á sviði netvarna, bæði innan NATO og í tvíhliða samstarfi við Noreg og önnur samstarfsríki.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila