Íslensk heimildarmynd um Grímsey og fleiri góðar frumsýndar í Bíó Paradís

Íslenska heimildarmyndin Eyríki, sem fjallar um Grímsey og óvissa framtíð byggðarinnar þar, verður tekin til sýninga í Bíó Paradís. Myndin er óður til Grímseyinga og tengsla þeirra við eyjuna þar sem mannabyggð hefur verið samfellt í um 800 ár.

Grímsey er nyrsta mannabyggð Íslands. Þegar íbúar voru flestir bjuggu þar um 120 manns en nú eru aðeins um 30 íbúar eftir og framtíð byggðarinnar sögð tvísýn.

Skólanum hefur verið lokað og fiskvinnsla lögð niður. Í myndinni er einnig fjallað um brunann þegar kirkjan í Grímsey brann til grunna.

Pólskar bókmenntir á hvíta tjaldið

Pólska stórmyndin Lalka, eða Dúkkan, verður einnig tekin til sýninga í Bíó Paradís.

Myndin er byggð á samnefndu verki pólska rithöfundarins Bolesław Prus og gerist í Varsjá á 19. öld.

Þar er fylgst með Stanisław Wokulski sem rís úr fátækt og verður auðugur kaupmaður. Þrátt fyrir auð og velgengni tekst honum ekki að öðlast það sem hann þráir mest. Sagan fjallar um ást, metnað og samfélag sem tekur örum breytingum.

Clueless og The Virgin Suicides sýndar á ný

Kvikmyndin Clueless verður sýnd á sérstakri föstudagssýningu 2. október klukkan 21.

Alicia Silverstone fer þar með hlutverk Cher, dekraðrar ungrar konu í Beverly Hills þar sem vinsældir og staða innan félagahópsins skipta miklu. Myndin er lauslega byggð á skáldsögunni Emma eftir Jane Austen.

Daginn eftir, laugardaginn 3. október klukkan 21, verður The Virgin Suicides eftir Sofiu Coppola sýnd.

Myndin fjallar um 5 systur sem alast upp undir ströngu eftirliti trúaðra foreldra sinna og drengina í hverfinu sem heillast af þeim. Kirsten Dunst fer með eitt aðalhlutverkanna.

Hlemmur og Lalli Johns í Bíótekinu

Sunnudaginn 4. október verður sérstök dagskrá Bíóteksins.

Klukkan 15 verður Hlemmur frá 2002 sýnd. Ólafur Sveinsson leikstjóri og Ester Bíbí Ásgeirsdóttir frá Kvikmyndasafni Íslands ræða myndina og viðfangsefni hennar við áhorfendur.

Klukkan 17:15 verður Lalli Johns frá 2001 sýnd. Fyrir sýninguna ræða Margrét Valdimarsdóttir, dósent í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands, og Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði, myndina út frá sjónarhorni afbrotafræðinnar.

Þau munu meðal annars ræða hvernig félagslegar aðstæður, jaðarsetning og viðbrögð samfélagsins geta mótað líf einstaklinga.

Dagskránni lýkur klukkan 19 með sýningu á Soylent Green frá 1973. Nemendur í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands flytja stutt erindi um myndina og viðfangsefni hennar.

Smelltu hér til þess að skoða dagskrána í Bíó Paradís

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila