Íslensk menning kynnt í Moskvu

Í tilefni af þátttöku íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í heimsmeistaramótinu í Rússlandi verða skipulagðir menningarviðburðir í Moskvu. Meðal annars mun rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson taka þátt í ævintýralegri barnamenningardagskrá í bókasafni erlendra fræða, föstudaginn 15. júní og verður þar með sögusmiðjur fyrir rússnesk börn og fjölskyldur. Ævar er einnig meðal þátttakenda í Söguboltanum, samstarfsverkefnin barnabókahöfunda, mennta- og menningarmálaráðuneytis og RÚV, sem íslenskir krakkar hafa fylgst með nú í vor. Þar eru tvinnaðar saman tvær ástríður íslensku þjóðarinnar, bókmenntir og fótbolti, en framhald verður á því verkefni í haust.
Sama kvöld, austur í Moskvu, verða tónleikar þar sem fram koma annars vegar Emilíana Torrini og hljómsveitin The Colorist og hins vegar Tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur. Tónleikarnir eru skipulagðir í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Sound Up Russia, sem einnig mun standa fyrir frekari kynningu á íslenskri tónlist í Rússlandi og ÚTON, Útflutningsmiðstöð íslenskrar tónlistar. Tónleikarnir fara fram í Kyndiklefanum „Бойлерная, Хлебозавод №9“ sem áður var, brauðverksmiðja sem nú hefur fengið nýtt hlutverk sem viðburðastaður fyrir fjölbreytta listviðburði.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir að í kynningunni felist tækifæri „Nú þegar augu svo margra beinast að Íslandi í kjölfar þessa frábæra árangurs íslenska karlalandsliðsins gefst okkur kærkomið tækifæri til að kynna íslenska menningu,“ segir Lilja Alfreðsdóttir. „Við leggjum sérstaka áherslu á bókmenntir og tónlist að þessu sinni – og ég er viss um að þetta verður góður upptaktur að auknum menningarsamskiptum.“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila