
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Pál Halldór Halldórsson, rallýökumann og jeppaáhugamann í síðdegisútvarpinu um upphaf íslenskrar jeppamenningar og hvernig erfiðar aðstæður hér á landi urðu til þess að jeppabreytingar þróuðust í séríslenskt áhugamál og atvinnugrein. Að sögn Páls má rekja upphafið til þeirra ökutækja sem herinn skildi eftir og eftirspurnar eftir farartæki sem kæmust um ófærð. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Aðlagaðir að íslenskum aðstæðum
Aðspurður um upphaf jeppabreytinga sagði Páll erfitt að benda á 1 ákveðinn upphafsmann. Þróunin hefði orðið smám saman eftir að herinn yfirgaf landið og skildi eftir bíla sem einstaklingar og fyrirtæki gátu eignast. Hann sagði íslenska náttúru og samgöngur hafa mótað þróunina. Vegir hefðu víða verið slæmir og mikill snjór yfir vetrartímann. Því hefðu menn byrjað að gera ýmsar breytingar til að auka veghæð og torfærufærni bílanna.
Stóru dekkin skiptu sköpum
Þegar umræðan barst að þróun jeppanna sagði Páll stærri dekk hafa markað tímamót. Með því að hleypa lofti úr dekkjunum stækkaði snertiflöturinn og bílarnir flytu betur á snjó auk þess sem þeir færu betur með undirlagið. 40 tommu dekk sem þróuð hefðu verið fyrir íslenskar aðstæður væru meðal þeirra vinsælustu í dag og mikið notuð bæði af jeppaeigendum og fyrirtækjum í ferðaþjónustu.
Þekking sem vakti athygli
Páll sagði jeppabreytingar hafa þróast úr lausnum sem menn fundu sjálfir yfir í sérhæfða atvinnugrein. Þekkingin sem byggst hefði upp hér á landi hefði vakið athygli erlendis og víða væri horft til Íslands þegar kæmi að breytingum á jeppum fyrir krefjandi aðstæður. Tekið hafi áratugi að byggja upp þá reynslu sem íslensk jeppamenning byggði á í dag.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
