Íslenska lögreglan ásamt FBI og Europol í alþjóðlegri lögregluaðgerð hér á landi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð á dögunum ásamt lögregluyfirvöldum í Bandaríkjunum og Portúgal og Europol. Vegna þessa komu starfsmenn bandarísku alríkislögreglunnar til Íslands.

Meðal annars var í aðgerðunum tekin niður vefsíða, sem var hýst hérlendis, í þágu rannsóknar á svikastarfsemi með rafmynt og peningaþvætti. Aðgerðin gekk vel, en við hana naut lögreglan enn fremur aðstoðar þriggja í íslenskra fyrirtækja. Málið féll undir að vera misnotkun á íslenskum innviðum og var þetta liður í að verja þá.

Enginn var handtekinn í aðgerðunum á Íslandi, en einn í Bandaríkjunum og annar í Portúgal.

Smella má hér til þess að lesa nánar um aðgerðina á vefsíðu bandarískra yfirvalda.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila