Íslenska öldungasveitin vann til bronsverðlauna á HM í Albaníu

Kristján Örn Elíasson ræddi við Þorstein Þorsteinsson, FIDE meistara í þættinum Við skákborðið, um heimsmeistaramót öldungasveita í skák sem fram fór í Albaníu. Íslenska 65 ára og eldri landsliðið vann þar til bronsverðlauna eftir harða baráttu við sterkustu sveitir mótsins og var í toppbaráttu allt fram á lokadaga keppninnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Íslendingar meðal sterkustu þjóða mótsins

Þorsteinn sagði Ísland hafa sent 3 sveitir til keppni, tvær í 50 ára og eldri flokki og eina í 65 ára og eldri flokki. Í eldri sveitinni tefldu Helgi Ólafsson á fyrsta borði, Margeir Pétursson á öðru, Jón L. Árnason á þriðja og þeir Þorsteinn og Áskell Örn Kárason skiptu með sér fjórða borðinu. Íslenska sveitin var efst á mótinu fram í næstsíðustu umferð þegar liðið mætti Rússum. Viðureigninni lauk með jafntefli, 2-2, en Þorsteinn sagði íslensku sveitina hafa verið mjög nálægt sigri sem hefði getað tryggt henni úrslitaviðureign um gullverðlaunin gegn Þjóðverjum í lokaumferðinni.

Hann lýsti sérstaklega skák Helga Ólafssonar gegn Sergei Janovsky þar sem Helgi hefði um tíma verið með vinningsstöðu áður en taflið snerist við og endaði með jafntefli. Þrátt fyrir það tapaði Helgi ekki skák á fyrsta borði allt mótið.

Aðeins tvö töp í 36 skákum

Þorsteinn sagði árangur sveitarinnar hafa verið afar stöðugan. Liðið tapaði aðeins 2 skákum af alls 36 sem tefldar voru á mótinu. Jón L. Árnason tapaði ekki heldur skák þrátt fyrir að hafa lítið teflt síðustu ár. Margeir Pétursson var stigahæstur íslensku liðsmannanna með 5 sigra, 2 jafntefli og aðeins 1 tap. Þorsteinn sagði Margeir hafa sýnt mikla seiglu í mörgum erfiðum stöðum og oft náð að snúa taflinu sér í hag eftir langar varnir.

Í lokaumferðinni mætti Ísland sterku ensku liði þar sem meðal annars tefldu stórmeistararnir John Nunn og Jonathan Mestel. Viðureigninni lauk með jafntefli sem tryggði Íslandi bronsverðlaunin.

Sterk kynslóð íslenskra skákmanna

Þorsteinn sagði árangurinn endurspegla styrk þeirra kynslóða íslenskra skákmanna sem komu fram í kjölfar heimsmeistaraeinvígis Bobbys Fischer og Boris Spassky í Reykjavík árið 1972. Hann taldi að skákáhuginn sem þá kviknaði hefði skapað óvenju sterka kynslóð sem nú væri komin á efri ár en héldi enn miklum styrk. Þá ræddi hann einnig um 50 ára og eldri sveitir Íslands. Aðalsveitin í þeim flokki hafnaði í 5 sæti með Jóhann Hjartarson, Þröst Þórhallsson, Karl Þorsteins og fleiri í fremstu röð. Vestfirðingasveitin, sem skipuð var eingöngu vestfirskum skákmönnum, endaði í 16. sæti og vakti athygli fyrir baráttuglaðan leik.

Þorsteinn sagði ljóst að Ísland gæti á næstu árum stillt upp enn fleiri sterkum öldungasveitum á alþjóðlegum vettvangi og taldi mikilvægt að hlúa betur að þessum hópi innan íslenskrar skákhreyfingar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila