
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ögmund Jónasson, sagnfræðing, fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi fréttamann RÚV, í síðdegisútvarpinu um fjárveitingar Íslands til hernaðarstuðnings við Úkraínu. Ögmundur hafnaði því að íslenskt skattfé ætti að renna til vopnakaupa og sagði Ísland eiga að leggja sitt af mörkum til að binda enda á stríðið í stað þess að fjármagna áframhaldandi hernað. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Hernaðarstuðningurinn kominn inn í fjárlögin
Ögmundur sagði að ef hægt væri að greiða sérstaklega atkvæði um einstaka fjárlagaliði myndi hann greiða atkvæði gegn fjárveitingum til vopnakaupa fyrir Úkraínu. Hann kallaði vopnin morðvopn og sagði Ísland ekki eiga að taka þátt í að auka manndráp heldur leggja sitt af mörkum til friðar.
Arnþrúður vakti athygli á því hversu lítil andstaða virtist vera við þessar fjárveitingar á Alþingi. Hernaðarstuðningurinn væri kominn inn í fjárlög og jafnframt væri boðað að meira fé yrði sent.
Ögmundur gagnrýndi að svo lítið heyrðist frá þingmönnum sem væru andvígir þessari stefnu og sagði nauðsynlegt að slík andstaða næði meiri fótfestu bæði á Alþingi og úti í samfélaginu.
Lítil umræða áður en fjármunirnir voru samþykktir
Ögmundur rifjaði einnig upp þegar fyrst var ákveðið að verja íslensku fé til hernaðarstuðnings við Úkraínu. Hann sagði málið ekki hafa farið í hefðbundið umsagnarferli og það hefði verið réttlætt með því að allir væru sammála.
Arnþrúður rifjaði upp þingsályktunartillögu frá tíð Bjarna Benediktssonar þegar Alþingi samþykkti fjárstuðning við Úkraínu. Hún sagðist muna eftir fyrirvara við málið því Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefði á fundi í utanríkismálanefnd látið bóka að hann samþykkti stuðning til mannúðarmála í Úkraínu en ekki til vopnakaupa. Ögmundur rifjaði jafnframt upp að Steinunn Þóra Árnadóttir hefði að minnsta kosti andmælt stuðningi til vopnakaupa.
Málsvari friðar í stað frekari vígvæðingar
Ögmundur gagnrýndi þá sem kölluðu eftir meiri fjármunum í vopn og vígbúnað án þess að þurfa sjálfir eða þeirra börn að fara í skotgrafirnar. Það væru ungmenni í Úkraínu sem bæru afleiðingarnar.
Ísland ætti því að stilla sér upp með þeim sem vildu frið og vinna að því að binda enda á stríðið. Ef bandarísk stjórnvöld næðu með samningum að forða ungu fólki frá skotgröfunum myndi hann styðja þá niðurstöðu, burtséð frá því hvaða hagsmunir Bandaríkjanna lægju þar að baki.
Arnþrúður benti á að hernaðarstuðningurinn hefði farið vaxandi án mikillar opinberrar umræðu. Ögmundur sagði almenning þurfa að láta meira frá sér heyra ef breyta ætti þeirri stefnu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
