Íslenskur karlmaður grunaður um vopnasmygl frá Bandaríkjunum

Lögreglan lagði hald á um helgina fjölda skotvopna, meðal annars vélbyssur og skammbyssur, íhluti skotvopna auk mikils magn skotfæra við húsleit á höfuðborgarsvæðinu.

Tilurð málsins er að húsráðandi, sem er íslenskur karlmaður, var handtekinn á flugvelli í Bandaríkjunum í síðustu viku. Hann var á leið sinni til Íslands, en í flugfarangri hans fundust skotvopn, íhlutir skotvopna og skotfæri. Ólöglegur útflutningur skotvopna og tengdra hluta er litinn mjög alvarlegum augum vestanhafs og hefur maðurinn því setið í varðhaldi allt frá handtöku. Íslensk lögregla fékk í kjölfarið greinargóða tilkynningu um málið frá bandarískum löggæsluyfirvöldum og í framhaldinu fékk Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu húsleitarheimild á heimili mannsins.

Fram kemur í tilkynningu lögreglu að megnið af þeim vopnum sem fundust við leitina séu í eigu húsráðanda enda skráð á hann í skotvopnaskrá. Þó er ljóst að hluti vopnanna er það ekki og viðkomandi vopn ekki skráð hérlendis. Auk þessa var haldlagt nokkuð af skotgeymum sem ekki eru löglegir til innflutnings hérlendis, hljóðdeyfar og fleira smálegt. Húsráðandinn sem um ræðir er með skotvopnaleyfi og er með leyfi fyrir öllum þeim flokkum skotvopna sem í boði eru hérlendis, þ.m.t. safnvopnum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila