
Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnisstjóri Vaðölduvers, Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, Karl Andreassen, forstjóri Ístaks og Hjálmur Sigurðsson, framkvæmdastjóri mannvirkja hjá Ístaki.
Landsvirkjun hefur samið við Ístak hf. um ýmis mannvirki fyrir Vaðölduver, þar sem fyrsta vindorkuver landsins rís. Upphæð samningsins nemur rúmum 6,8 milljörðum króna. Reiknað er með að Ístak hefjist handa núna í maí og að verkinu ljúki sumarið 2027.
Sjö tilboð bárust í verkið
Tilboð Ístaks var metið hagstæðast að teknu tilliti til samtölu fjárhæðar þess og tilboðs í kolefniskostnað.
Undir samninginn fellur bygging á járnbentum og steinsteyptum undirstöðum fyrir 28 vindmyllur, sem og gerð kranastæða fyrir uppsetningu vindmyllanna, ásamt allri jarðvinnu. Þá reisir Ístak um 1000 m² safnstöð á svæðinu, steinsteypta byggingu sem nýtt verður fyrir ýmsan búnað og verkstæði. Safnstöðin verður tengd við tengivirki Landsnets. Þá þarf að leggja töluvert af lögnum á svæðinu og grafa fyrir þeim, ganga
frá vatnsveitu, fráveitu og malarplönum.
Fyrri hlutinn tilbúinn 2026
Landsvirkjun samdi í nóvember sl. við þýska fyrirtækið Enercon um kaup, uppsetningu og rekstur á vindmyllunum 28, sem reistar verða í Vaðölduveri. Fyrri helmingur þeirra verður gangsettur á næsta ári og seinni hlutinn árið 2027.
Fyrir skömmu buðu Landsvirkjun og Enercon til vinnustofu á Selfossi þar sem fulltrúar frá sveitarfélögum á Suðurlandi, Vegagerðinni, Samgöngustofu, lögreglunni, Landsneti, RARIK og nokkrum verkfræðistofum komu saman til að ræða allar hliðar skipulags og undirbúnings flutnings á vindmyllunum, enda ljóst að þeir flutningar verða gríðarmiklir. Landsvirkjun kappkostar að eiga sem allra best samstarf við alla þá aðila
sem hagsmuna eiga að gæta.
