Já er atkvæði með aðildarumsókn en ekki að „kíkja í pakkann“

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Ögmund Jónasson, fyrrverandi ráðherra og meðlim í Til vinstri við ESB, í síðdegisútvarpinu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Ögmundur sagði þjóðina í raun eiga að samþykkja aðildarumsókn frá 2009 en ekki aðeins heimild til að kanna hvað er í boði. Engin þjóð ætti að hefja slíkt ferli nema raunverulegur vilji væri til inngöngu í Evrópusambandið. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

„Pakkinn“ er áróðursbragð

Ögmundur sagði áróðursbragð að halda því fram að þjóðaratkvæðagreiðslan snerist eingöngu um að „kíkja í pakkann“. Grundvallaratriðið væri hvort Ísland ætti að sækja um aðild að Evrópusambandinu.

Aðildarviðræður eru ekki hlutlaus upplýsingaöflun, þar sem Ísland fengi að sjá tilboð frá ESB og tæki síðan óskuldbindandi ákvörðun um framhaldið. Þær hæfust vegna umsóknar um fulla aðild og miðuðu að því að innleiða íslensk lög og stjórnsýslu að regluverki sambandsins.

Ögmundur sagði enga þjóð eiga að sækja um aðild nema hún vilji gerast meðlimur í ESB. Einnig þyrfti að vera samstaða um slíka ákvörðun innan þings og meðal þjóðarinnar.

Sú staða væri ekki fyrir hendi á Íslandi. Ekki væri meirihluti á Alþingi fyrir aðild og stjórnarflokkarnir væru heldur ekki sammála um hvort Ísland ætti að ganga í ESB. Þjóðin væri jafnframt klofin í afstöðu sinni.

Innganga í myntbandalagið ekki hluti af viðræðunum

Pétur vakti athygli á því að umræðan um ESB snerist að miklu leyti um vexti, efnahagslegan stöðugleika og önnur atriði sem stuðningsmenn aðildar tengdu við mögulega inngöngu.

Ögmundur sagði að ekki yrði samið um vexti við samningsborðið. Fullyrðingar um lægri vexti eða aukinn efnahagslegan stöðugleika byggðust á mati á því hvað kynni að gerast eftir aðild en ekki niðurstöðu sem ESB gæti lofað Íslandi.

Já þýðir umsókn um fulla aðild að Evrópusambandinu

Pétur spurði hvort já í þjóðaratkvæðagreiðslunni staðfesti aðildarumsóknina frá 2009 eða hvort hefja ætti alveg nýtt ferli. Ögmundur sagði þar komið að einu helsta vandamálinu. Mánuðum saman hefði verið deilt um hvað kjósendur væru nákvæmlega að samþykkja og hvort viðræðurnar yrðu teknar upp þar sem frá var horfið.

Óljóst væri hvort þeir samningskaflar sem áður voru opnaðir væru enn í gildi og hvort rauðu línurnar sem Alþingi setti árið 2009 giltu áfram. Landskjörstjórn hefur heldur ekki getað veitt skýr svör við því hvað tæki við ef já yrði niðurstaðan. Hvort sem byggt yrði á umsókninni frá 2009 eða nýju ferli væri niðurstaðan að Ísland væri að sækja um fulla aðild að Evrópusambandinu.

Ögmundur sagði kjósendur þurfa að gera sér grein fyrir þessu áður, en þeir greiddu atkvæði. Já væri ekki aðeins samþykki fyrir frekari samtölum eða að “kíkja í pakkann” heldur stuðningur við vegferð sem miðaði að fullri aðild Íslands að ESB.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila