
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ragnar Guðmundsson, matreiðslumeistara og veitingamann í Laugaás í 43 ár og Eirík Inga Friðgeirsson matreiðslumeistara og fyrrum veitingamann á Hótel Holti í Jólaþættinum á Útvarpi Sögu í dag, um sögu íslenskra jólahlaðborða og breytingar á jólaveislum landsmanna. Jólahlaðborðin tóku að ryðja sér til rúms hér á landi um 1980 að danskri fyrirmynd en hafa síðan þróast úr tiltölulega einföldum veislum yfir í fjölbreytt hlaðborð með fjölda kjöt-, fisk- og eftirrétta. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Jólahlaðborðin hófust í Brauðbæ um 1980
Ragnar rifjaði upp að Gísli í Brauðbæ, hefði verið meðal þeirra fyrstu sem buðu upp á jólahlaðborð á Íslandi, um 1980. Fyrirmyndin var sótt til Danmerkur þar sem síldarréttir, purusteik og lifrarkæfa voru meðal helstu rétta.
Eiríkur sagði fyrstu jólahlaðborðin hafa verið mun einfaldari en þau sem þekktust í dag. Réttirnir hefðu verið um 10 talsins og áherslan á hefðbundinn danskan jólamat.
Þegar fleiri veitingastaðir tóku upp jólahlaðborðin fjölgaði réttunum verulega. Smám saman urðu þau líkari stórum köldum hlaðborðum þar sem síldin, purusteikin og Waldorfsalatið minntu helst á upprunalegu jólahefðina.
Hangikjöt, kalkúnn og nautakjöt bættust við
Íslensku jólahlaðborðin þróuðust áfram með auknu úrvali kjöt- og fiskrétta. Hangikjöt, hamborgarhryggur, kalkúnn og nautalund urðu áberandi ásamt purusteik og hefðbundnum síldarréttum.
Ragnar minnti á mikilvægi heimalagaðs rauðkáls sem alltaf hefði verið útbúið á Laugaási. Sú hefð hefði haldist áfram á veitingastöðunum sem synir matreiðslumeistaranna reka nú, meðal annars í Perlunni, Eiríksdóttur Grósku og Eiríkssonar á Laugavegi 77.
Grafinn lax upphaflega á jólahlaðborði Hótels Holts
Grafinn og reyktur lax héldu einnig sínum sessi. Ragnar rifjaði upp hvernig Stefán Hjaltested hefði komið með uppskrift að gröfnum laxi frá Svíþjóð til Hótels Holts.
Eiríkur sagði uppskriftina hafa verið notaða þar í um 50 ár. Grafni laxinn, humarsúpan og humar í skel hefðu verið 3 réttir sem héldust óbreyttir á matseðlinum þrátt fyrir yfirkokkaskipti.
Matreiðslan hefur breyst frá grunni
Arnþrúður spurði hvernig undirbúningur jólahlaðborða hefði breyst frá fyrstu árum þeirra í veitingarekstri.
Ragnar sagði matreiðslumenn áður hafa þurft að vinna nánast allt sjálfir frá grunni, meðal annars úrbeina heila skrokka, salta kjöt og útbúa síldarrétti og meðlæti frá grunni. Nú væri hægt að kaupa stóran hluta hráefnisins tilbúinn til matreiðslu.
Eiríkur rifjaði upp 3 tímabil í þróun grænmetisframboðs á Íslandi. Fyrst hefði nær eingöngu verið notað dósagrænmeti, síðan hefði frosið grænmeti rutt sér til rúms um 1980 og loks ferskt grænmeti í miklu úrvali.
Þrátt fyrir breytingarnar héldu margir veitingastaðir áfram að útbúa hefðbundna rétti frá grunni. Ragnar sagði heimalagaða rauðkálið og síldarréttina enn skipa mikilvægan sess og gömlu uppskriftirnar lifðu áfram samhliða nýjungum í matargerð.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
