Jón Gnarr: Eigum að halda Íslandi sem mest utan vopnaframleiðslu

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Gnarr, þingmann utan flokka, leikara og fyrrverandi borgarstjóra, í síðdegisútvarpinu í dag, um vopnaframleiðslu og mögulega þátttöku Íslands í slíkri starfsemi. Jón vill halda Íslandi sem mest utan vopnaframleiðslu en gerir greinarmun á búnaði sem ætlaður er til árása og tækni sem fyrst og fremst þjónar vörnum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Árás og vörn ekki það sama

Arnþrúður vakti máls á umræðu um mögulega þátttöku Íslendinga í vopnaframleiðslu fyrir Úkraínu og spurði Jón hvort hann væri sammála því að Ísland færi inn á þá braut.

Hann sagðist vilja halda Íslandi sem mest fyrir utan vopnaframleiðslu. Reynslan sýndi þó að málið væri ekki alveg svart og hvítt því árás og vörn væru tvennt ólíkt þótt vopn gætu komið við sögu í báðum tilvikum. Jón vísaði til Svíþjóðar þar sem hann hafði búið og þekkti til langrar sögu vopnaframleiðslu. Hann taldi mikilvægt að gera greinarmun á mismunandi tegundum búnaðar áður en tekin væri afstaða til slíkrar starfsemi hér á landi.

Jarðsprengjur koma ekki til greina

Sumar tegundir vopna ættu að hans mati alls ekki að vera framleiddar á Íslandi. Hann nefndi jarðsprengjur sérstaklega og sagði þær geta valdið gríðarlegu tjóni árum og jafnvel áratugum eftir að stríðsátökum lýkur.

Ef fram kæmi tillaga um fyrirtæki á Íslandi sem ætlaði að framleiða nýja tegund jarðsprengna myndi hann ekki samþykkja það.

Hann vildi einnig að Ísland héldi sig frá vafasamri hernaðarstarfsemi og hafði almennt þá þumalputtareglu að landið ætti að halda sig eins langt frá ófriði og þátttöku í honum og mögulegt væri en jafnframt styðja fólk sem beitt væri órétti.

Varnarbúnaður getur verið annars eðlis

Afstaðan er ekki sú að hafna allri tækni sem gæti fallið undir vopnaframleiðslu. Jón tók sem dæmi fyrirtæki sem þróaði hátæknibúnað eða leysivopn sem gæti skotið niður dróna. Slíka framleiðslu væri hann tilbúinn að skoða enda væri tilgangurinn þá varnarlegs eðlis.

Sama ætti við um dróna. Eftirlitsdrónar og annar búnaður sem ekki væri ætlaður til að granda fólki væri annars eðlis en drónar sem sérstaklega væru gerðir til að flytja sprengiefni.

Drónar sem valda limlestingum ekki ásættanlegir

Arnþrúður ræddi jafnframt þá hernaðaruppbyggingu sem nú ætti sér stað víða í Evrópu og nauðsyn þess að huga að öryggismálum Íslands.

Hann lagði áherslu á að drónar sem væru hannaðir til að flytja sprengiefni, valda eyðileggingu og limlesta fólk væru meðal þeirrar framleiðslu sem hann myndi ekki styðja.

Mörkin lægju því ekki einfaldlega á milli vopna og annars búnaðar heldur skipti tilgangur tækninnar miklu máli. Ísland ætti að hans mati að halda sig sem mest utan hefðbundinnar vopnaframleiðslu en gæti metið varnarbúnað með öðrum hætti.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila