
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Gnarr, þingmann utan flokka, leikara og fyrrverandi borgarstjóra, í síðdegisútvarpinu í dag, um ástæður þess að hann sagði sig úr þingflokki Viðreisnar. Jón sagði starfshóp sem hann leiddi í september s.l. hafa leitt í ljós mun alvarlegri vanda innan flokksins en hann hafði gert sér grein fyrir og nefndi meðal annars klíkumyndun, ákvörðunarfælni hjá forystunni, stjórnleysi og uppsafnaðan samskiptavanda. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Þjóðaratkvæðagreiðslan var illa undirbúin
Jón sagðist ekki hafa átt von á því að þjóðaratkvæðagreiðslan yrði sett á dagskrá, svo skömmu eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Það hefði komið honum á óvart og hann hefði verið óánægður með þá ákvörðun, sem hafi verið búið að taka, og þingflokkurinn hafi fengið lítið svigrúm til þess að andmæla eða ræða málið. Jón sagðist hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu en þetta hefði borið allt of brátt að, undirbúningur og framkvæmd verið í lausu lofti. Þegar ljóst var að Já sinnar hefðu tapað kosningunum segist hann hafa átt fund í byrjun september með Þorgerði formanni og sagt henni frá áhyggjum sínum hvernig væri komið fyrir flokknum.
Staðan innan Viðreisnar mun alvarlegri en hann hafi talið í fyrstu
Þorgerður hefði lagt til að hann færi fyrir starfshóp innan Viðreisnar til þess að skoða stöðuna innan flokksins og koma með tillögur til úrbóta. Jón samþykkti það með því skilyrði að hópurinn hefði stuðning og traust formanns og stjórnar flokksins.
Þegar hópurinn fór að ræða við fólk og kafa dýpra í málin sagði Jón að honum hefði orðið ljóst að vandinn væri mun alvarlegri en hann hafði áður talið. Þar hefði verið alvarlegur samskiptavandi og klíkumyndun sem hann lýsti sem sellum innan flokksins.
Ákvörðunarfælni hjá forystunni
Arnþrúður spurði Jón nánar út í það sem hann hafði kallað óheilbrigðar aðstæður innan þingflokksins.
Jón sagði vandann margþættan. Þar væri skipulagsvandi og erfið samskipti og menn jafnvel andlega illa á sig komnir og veikir. Honum hefði fundist sérstaklega slæmt að ekki væri tekið á ákvörðunarfælni hjá forystu flokksins.
Klíkumyndun og formaðurinn ber ábyrgðina
Þegar Arnþrúður spurði hverja hann ætti við nefndi Jón fyrst og fremst Þorgerði Katrínu en einnig stjórn flokksins, varaformann og þáverandi þingflokksformann. Aðsðurður hver bæri ábyrgð á stjórleysinu sagði hann að það væri formaðurinn Þorgerður Katrín.
Jón nefndi sérstaklega að honum hefði fundist óeðlilegt að sitjandi þingflokksformaður væri eiginkona aðstoðarmanns Þogerðar Katrínar, formanns flokksins. Hann sagðist hafa rætt þetta við forystuna og talið fyrirkomulagið óheilbrigt en ekki hefði verið hlustað á þá gagnrýni.
Ákvarðanir teknar áður en þær voru kynntar – Klíkan búin að taka ákvörðum
Arnþrúður spurði hvort Jón væri að lýsa klíku þar sem ákvarðanir væru teknar áður en mál kæmu til umræðu innan þingflokksins og niðurstaðan síðan tilkynnt öðrum. Jón tók undir þá lýsingu og sagði það hafa gerst að ákvörðun væri tekin og síðan einfaldlega tilkynnt.
Hann hafði jafnframt búist við að formaður flokksins fylgdist náið með vinnu starfshópsins og hefði samband til að kanna hvernig vinnunni miðaði. Það gerðist ekki. Jón sagði hópinn hafa komist að því að staðan væri mjög alvarleg og taldi nauðsynlegt að bregðast hratt, skipulega og af festu við. Aðgerðir hefðu hins vegar ekki fylgt í kjölfarið.
Starfshópurinn fékk ekki stuðning – Formaðurinn hringdi ekki
Jón sagði þá tilfinningu hafa orðið sterkari að starfshópurinn hefði mögulega aðeins verið leið til að bregðast tímabundið við óánægju hans. Hann sagðist hafa beðið eftir því að formaðurinn sýndi áhuga á niðurstöðum vinnunnar og hefði samband en það símtal hefði aldrei komið.
Jón lýsti jafnframt tortryggni sem hann upplifði gagnvart sér og tilgangi vinnu sinnar þótt hann hefði sjálfur farið inn í verkefnið með það markmið að bæta samskipti og skipulag.
Hann sagði síðar að Viðreisn væri í krísu vegna fjölþætts vanda sem fæli meðal annars í sér skipulagsleysi, áföll, veikindi, uppsafnaðan samskiptavanda og pólitískar deilur.
Úrsögnin varð niðurstaðan
Jón sagði sig á endanum hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri hlustað á hann. Eftir að hafa rætt stöðuna við eiginkonu sína tók hann ákvörðun um að yfirgefa þingflokk Viðreisnar.
Hann tilkynnti forystu flokksins ákvörðunina og sagði síðar á fundi með formanninum að henni yrði ekki breytt. Ákvörðunin væri í samræmi við sannfæringu hans og hann myndi svíkja sjálfan sig ef hann fylgdi henni ekki.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
