
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Gunnarsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra í síðdegisútvarpinu í dag, um komu skips á vegum Paul Watson að Íslandsmiðum og hótanir um aðgerðir gegn íslenskum hvalveiðum. Jón sagði samtök Watsons ekki vera knúin áfram af náttúruvernd heldur gróðasjónarmiðum og lýsti þeim sem glæpamönnum sem hefðu ítrekað beitt skemmdarverkum og öðrum ólögmætum aðgerðum. Hann taldi markmið þeirra vera að skapa átök og fjölmiðlaumfjöllun til að afla fjárframlaga en ekki að vernda hvali. Fjölmiðlar hefðu því miður ekki áttað sig á þessu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Mótmælin eru fjárplógsstarfsemi fyrir samtökin
Arnþrúður spurði Jón að því hvernig hann meti komu skips á vegum Paul Watson inn í íslenska efnahagslögsögu og yfirlýstan ásetning þess um að stöðva hvalveiðar. Hann svaraði því til að þar væri ekkert nýtt á ferðinni heldur hefðu sömu einstaklingar og samtök staðið að sambærilegum mótmælum allt frá því Ísland hóf hvalveiðar á ný.
Um tilgang aðgerðanna sagði Jón að hann teldi þær fyrst og fremst snúast um fjárplógsstarfsemi. Hann sagði samtökin byggja rekstur sinn á því að vekja athygli, skapa átök og fá fólk víða um heim til að leggja þeim til fé. Hann benti á að á vefsíðum og samfélagsmiðlum þeirra væri sífellt verið að biðja um fjárframlög og sagði það sýna hvert raunverulegt markmið starfseminnar væri. Að hans mati myndu sömu aðilar einfaldlega finna sér nýtt baráttumál ef hvalveiðar hyrfu, enda snerist starfsemin um að halda fjárstreymi gangandi.
Um ótínda glæpamenn að ræða
Þegar Arnþrúður spurði um hótanir um aðgerðir gegn Olíudreifingu og annarri starfsemi sem tengist hvalveiðum rifjaði Jón upp fyrri aðgerðir hvalveiðiandstæðinga hér á landi. Hann sagði einstaklinga tengda þessum hópum hafa framið skemmdarverk á hvalveiðiskipum, brotist inn í skip, eyðilagt búnað og stolið tölvum og öðrum verðmætum. Nú í aðdraganda aðgerða þeirra nú hafi þeir beinlínis viðurkennt skemmdarverkin og hreykt sér af þeim.
Um væri að ræða ótínda glæpamenn sem væru tilbúnir að fremja refsiverð brot til að ná markmiðum sínum. Hann sagði þá ekki vera hefðbundna umhverfisverndarsinna heldur fólk sem hefði ítrekað sýnt fram á vilja til að beita skemmdarverkum og hótunum. Aðspurður um nýjustu yfirlýsingar hópsins sagði Jón að ef einhverjir hygðust fremja glæpi hér á landi yrði einfaldlega að taka á því samkvæmt íslenskum lögum.
Síðar í viðtalinu sagði Jón einnig að Paul Watson og félagar hefðu ítrekað eignað sér heiðurinn af því þegar hvalveiðar hefðu stöðvast á Íslandi. Til dæmis þegar Svandís Svavarsdóttir stöðvaði með ólögmætum hætti hvalveiðar með sólarhrings fyrirvara. Hann taldi það vera hluta af þeirri ímynd sem samtökin byggðu upp til að sýna stuðningsmönnum sínum árangur og auðvelda frekari fjáröflun.
Óhófleg umfjöllun fjölmiðla um samtökin vatn á myllu samtakanna
Þá spurði Arnþrúður hvort fjölmiðlar hefðu gert of mikið úr komu skipsins. Jón svaraði því til að svo væri og sagði mikla fjölmiðlaumfjöllun þjóna hagsmunum Paul Watson og samtaka hans. Hann taldi athyglina vera forsendu þess að hægt væri að afla sífellt meiri fjárframlaga.
Aðspurður um viðbrögð íslenskra stjórnvalda sagði Jón að þau ættu ekki að láta undan þrýstingi eða hótunum heldur halda áfram að verja lögmæta atvinnustarfsemi. Hann sagðist treysta Landhelgisgæslu og lögreglu til að meta aðstæður og grípa til viðeigandi aðgerða ef lög yrðu brotin, en taldi stjórnvöld ekki eiga að láta erlenda þrýstihópa hafa áhrif á stefnu sína.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
