Jón Pétur: „Ef við töpum tungunni þá hættum við að vera þjóð“

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Pétur Zimsen, þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóra í síðdegisútvarpinu um mikilvægi íslenskunnar fyrir menningu og þjóðarvitund. Jón Pétur sagði sameiginlegt tungumál, menningu og reynslu vera meðal þess sem skapaði þjóðina og varaði við því að ef Íslendingar töpuðu tungunni væri hætta á að þeir hættu að vera þjóð. Skólarnir gegndu þar lykilhlutverki með því að byggja upp orðaforða, hugtakaskilning og þekkingu barna á sögu landsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Tungumálið skapar þjóðina

Jón Pétur lagði áherslu á að þjóð væri meira en fólk sem byggi innan sömu landamæra. Sameiginleg menning, reynsla og tungumál tengdu fólk saman og mynduðu þann grunn sem þjóðin byggði á.
Hann varaði við því að ef Íslendingar töpuðu tungunni væri hætta á að þeir hættu að vera þjóð. Arnþrúður spurði hvort þetta væri ekki enn ein ástæða þess að skólarnir þyrftu að standa vörð um íslenskuna.

Jón Pétur taldi það eitt af mikilvægustu hlutverkum skólanna. Íslenskan væri grunnurinn að sameiginlegum skilningi og tengslum milli kynslóða og því þyrfti að leggja ríka áherslu á hana í skólastarfi.

Orðaforðinn opnar menninguna

Tungumálakunnátta snerist ekki aðeins um að geta lesið og skrifað. Jón Pétur lagði áherslu á að með tungumálinu byggðu börn upp orðaforða og hugtakaskilning sem gerði þeim kleift að skilja samfélagið og menninguna.

Hann tók íslensk orðtök sem dæmi og nefndi orðalagið að ganga með grasið í skónum á eftir einhverjum. Til að skilja slíkt orðalag þyrfti meira en þekkingu á einstökum orðum. Þar kæmi til sameiginlegur mál- og menningararfur sem fólk tileinkaði sér með góðum orðaforða og þekkingu á íslenskunni.

Þurfum að vita hvaðan við komum

Jón Pétur tengdi tungumálið einnig við söguþekkingu og taldi mikilvægt að börn þekktu sögu þjóðarinnar. Til að geta byggt framtíðina þyrfti fólk að vita hvaðan það kæmi og skilja þann menningarlega grunn sem samfélagið hefði byggst á.

Skólarnir hefðu því mikilvægu hlutverki að gegna við að varðveita þessa samfellu. Íslenska, orðaforði, hugtakaskilningur og saga væru hluti af sama grunni sem gerði komandi kynslóðum kleift að skilja samfélagið og halda íslenskri menningu áfram.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila