Jónas: Byggingareftirlitinu verður breytt svo gallar finnist fyrr

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Jónas Atla Gunnarsson, yfirhagfræðing hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, og Má Wolfgang Mixa, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, í þættinum Skipulagsmál, um byggingargalla og eftirlit með nýbyggingum. Jónas sagði HMS ætla að breyta byggingareftirlitinu með það að markmiði að gallar komi fyrr í ljós en hingað til. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Skortur á gögnum hefur hamlað eftirlitinu

Jónas sagði eitt stærsta vandamálið hafa verið að ekki væru til nægilega góð gögn um hversu algengir byggingargallar væru í nýbyggingum. Það hefði gert erfiðara að sjá hvar vandinn væri mestur og hvernig eftirlitinu væri best háttað.

HMS ætlar því að breyta fyrirkomulagi byggingareftirlitsins og leggja meiri áherslu á að greina gallana áður en þeir verða að stórum og kostnaðarsömum vandamálum fyrir íbúðaeigendur.

Jónas lagði jafnframt áherslu á að þeir sem byggja húsnæði beri ábyrgð á því ef gallar koma fram og þurfi að geta staðið undir kostnaði við úrbætur.

Ófaglærðir menn við sérhæfð byggingarstörf

Hjördís vakti athygli á eftirlitsmáli í Garðabæ þar sem 30 menn hefðu verið við störf en aðeins einn þeirra nærri því að vera sveinn. Hinir hefðu verið ólærðir.

Hún benti á að um væri að ræða störf við þök, loftræstikerfi, pípulagnir, raflagnir og múrverk þar sem lög og reglur gera kröfur um fagmenntun og ábyrgð.

Hjördís sagði slíka stöðu óboðlega og taldi nauðsynlegt að eftirlitið virkaði í raun, ekki aðeins á pappír. Reglur um fagmenntun hefðu lítið gildi ef engin raunveruleg eftirfylgni væri með því að þeim væri fylgt.

Kortlagningin sýnir umfang vandans

Már sagði vinnu nú standa yfir við að kortleggja byggingargalla mun ítarlegar en áður. Teymi undir stjórn Stefáns Hrafns Jónssonar hefði unnið að slíkri greiningu og HMS hefði samhliða staðið að rannsóknum á vandanum.

Már sagði niðurstöðurnar sýna að gallarnir væru umfangsmiklir. Mikilvægasta breytingin væri þó að nú væru loksins að verða til gögn sem gerðu kleift að ráðast skipulega að vandanum.

Markmiðið er að byggingargallar uppgötvist fyrr

Í stað þess að bregðast við einstökum gallamálum eftir að þau koma upp verði hægt að sjá mynstrið, greina hvar vandinn liggur og beina eftirliti þangað sem mest þörf er á.

Markmiðið er að byggingargallar uppgötvist fyrr og að hægt verði að koma í veg fyrir að kostnaður og tjón lendi síðar á fólki sem kaupir nýtt húsnæði.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila