
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ragnar Sigurð Kristjánsson, hagfræðing Viðskiptaráðs, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu, um fyrirhugaða yfirtöku ríkisins á láni vegna lífeyrisskuldbindinga Ríkisútvarpsins. Ragnar telur nauðsynlegt að kanna hvort aðgerðin samræmist reglum EES um ríkisstuðning enda feli hún í sér umfangsmikinn fjárhagslegan stuðning við RÚV til framtíðar. Arnþrúður spurði jafnframt spurningar um eftirlit með auglýsingasölu ríkismiðilsins, afsláttarkjör og þá sérstöðu sem opinbert hlutafélagaform RÚV skapar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Yfirtaka lífeyrisskuldarinnar verði skoðuð samkvæmt EES-reglum
Í fjárlagafrumvarpinu hefur ríkisstjórnin boðað að ríkið taki yfir lán vegna lífeyrisskuldbindinga RÚV. Ríkisútvarpið greiðir nú um 200 milljónir króna á ári af láninu og yrði yfirtakan því veruleg fjárhagsleg breyting fyrir félagið.
Arnþrúður spurði hvort slík ráðstöfun væri eðlileg í ljósi samkeppnisreglna EES, þar sem RÚV starfar á sama auglýsingamarkaði og einkareknir fjölmiðlar.
Ragnar sagði yfirtökuna hugsaða sem mótvægisaðgerð við þá skerðingu auglýsingatekna sem fyrirhugaðar breytingar á lögum um RÚV hefðu í för með sér. Samkvæmt frumvarpinu eiga 10% af auglýsingatekjum ríkismiðilsins að renna til stuðningssjóðs einkarekinna fjölmiðla.
Þegar ríkið tæki jafnframt yfir lánið væri í raun verið að veita RÚV umfangsmikinn stuðning til framtíðar. Ragnar kvaðst ekki vita hvort samræmi aðgerðarinnar við reglur EES hefði verið kannað við undirbúning málsins og sagði mikilvægt að komast til botns í því.
Auglýsingasamningar RÚV við auglýsingastofur undir smásjánni
Arnþrúður fjallaði einnig um viðskiptahætti Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði og þá samkeppnisstöðu sem skapaðist þegar ríkisfjármagnaður miðill keppti við einkarekin fyrirtæki.
Hún greindi frá því að RÚV væri með samninga við tilteknar auglýsingastofur þar sem greiðslur færu til stofanna vegna auglýsingaviðskipta. Minni fjölmiðlar hefðu ekki sambærilega möguleika á að gera slíka samninga. Arnþrúður tók sérstaklega fram að hún væri ekki að fullyrða að um markaðsmisnotkun væri að ræða. Hún taldi viðskiptahættina hins vegar óeðlilega og vildi að Samkeppniseftirlitið skoðaði þá.
Hver gætir hagsmuna auglýsenda?
Hún vakti jafnframt athygli á hagsmunum auglýsenda. Þegar auglýsingastofur fengju greiðslur frá þeim miðlum sem þær beindu viðskiptum til gætu vaknað spurningar um hvort ráðgjöf til auglýsenda byggðist á þeirra hagsmunum eða þeirra sem veitti ráðgjöfina.
Ragnar tók fram að hann þekkti þetta tiltekna fyrirkomulag ekki nægilega vel til að leggja sjálfstætt mat á það. Hins vegar væri sérstaklega mikilvægt að fylgst væri með eðlilegum viðskiptaháttum á markaði þar sem einn aðili nyti umfangsmikillar opinberrar fjármögnunar.
Eftirlit með afsláttarkjörum og auglýsingasölu
Arnþrúður beindi einnig sjónum að ákvæðum laga um RÚV varðandi afsláttarkjör og spurði hvernig auglýsendur og eftirlitsaðilar gætu sannreynt að þeim væri fylgt.
Hún velti fyrir sér hvort Ríkisútvarpið gæti boðið auglýsingar á verði sem aðrir fjölmiðlar ættu erfitt með að keppa við og hvernig hægt væri að hafa eftirlit með slíkum viðskiptum.
Samkeppniseftilitið þarf að hafa virkari aðkomu og eftirlit
Að hennar mati væri mikilvægt að Samkeppniseftirlitið hefði virkari aðkomu að þessum málum. Hún vísaði jafnframt til fyrri umfjöllunar Ríkisendurskoðunar um rekstur RÚV og þeirra spurninga sem vaknað hefðu um aðgreiningu tekna og rekstrarkostnaðar.
Ragnar lagði áherslu á að umfangsmikil opinber fjármögnun eins fyrirtækis gerði eðlilegt samkeppniseftirlit enn mikilvægara, sérstaklega þegar fyrirtækið starfaði jafnframt á almennum auglýsingamarkaði.
Opinbert hlutafélagaform takmarki upplýsingaaðgang
Félagaform Ríkisútvarpsins var einnig til umfjöllunar. RÚV er opinbert hlutafélag en um slík félög gilda að mestu leyti aðrar reglur en um hefðbundnar ríkisstofnanir.
Ragnar benti á að opinber hlutafélög væru undanþegin upplýsingalögum og að það takmarkaði möguleika á að afla upplýsinga um starfsemi þeirra.
RÚV þarf ekki að svara fyrir mannaráðningar
Arnþrúður spurði hvort þetta væri eðlilegt þegar um væri að ræða fyrirtæki í eigu ríkisins sem nyti lögbundinnar fjármögnunar. Hún nefndi meðal annars upplýsingar um mannaráðningar og möguleika Alþingis til að fylgjast með rekstrinum.
Ragnar útskýrði að tilgangurinn með opinberu hlutafélagaformi hefði meðal annars verið að fjarlægja pólitísk afskipti frá fyrirtækjum sem störfuðu að einhverju leyti í samkeppnisrekstri.
Hann taldi þó ekki jákvætt að RÚV væri undanþegið upplýsingalögum. Tryggja þyrfti að stjórnvöld og kjörnir fulltrúar gætu fengið nauðsynlegar upplýsingar um rekstur og viðskiptahætti félagsins.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
