Kannað á morgun hvenær hægt verður að hleypa fólki inn í Grindavík

Aðgangur fyrir fyrirtæki og íbúa inn í Grindavík verður endurskoðaður eftir fund viðbragðsaðila í fyrramálið.    Þá er það forsenda fyrir opnun inn í Bláa Lónið og Northern Light Inn að hægt verði að opna flóttaleið inn á Grindavíkurveg og inn á Reykjanesbraut. Þetta segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Í tilknynningunni kemur fram að í morgun hafi staðið til að landa úr skipum í Grindvíkurhöfn en það var ákvörðun viðbragðsaðila að heimila það ekki m.a. vegna mengunarhættu og óvissu með framgang hraunrennslis fyrir ofan Suðurstrandarveg.  Hrauntjörn hefur myndast skammt frá enda hraunjaðarsins ofan við Suðurstrandarveg.  Er því viðbragðsaðilum sem öðrum haldið frá hraunjaðrinum á meðan hætta er talin á að hraun geti flætt þar fram á miklum hraða.   Enn er hætta á að hraun renni yfir Suðurstrandarveg.  Í dag er mikil brennisteinsmengun á svæðinu.   Þá er hluti Grindavíkurvegar undir hrauni og sú flóttaleið úr sögunni í einhverja daga.

Virkni í eldgosinu hefur verið nokkuð stöðug síðan seinnipartinn í gær. Það gýs á tveimur svæðum á gossprungunni í nokkrum gosopum, en svo virðist sem slökknað hafi í nyrstu gosopunum. Virkustu gígarnir eru sunnarlega á gossprungunni sem opnaðist á laugardagskvöld og frá þeim er hraunrennsli til suðurs í átt að Suðurstrandarvegi. Í morgun voru um 330 m frá hraunjaðrinum að veginum og hafði jaðarinn færst lítið áfram miðað við í gærkvöldi. Við athuganir á svæðinu í gærkvöldi virtist ekki vera mikil virkni eða hreyfing í hrauntungunni sem fór yfir Grindavíkurveg aðfaranótt sunnudags.

Flatarmál hraunsins hefur verið metið 5,85 ferkílómetrar út frá gervitunglamyndum sem voru teknar kl. 14:56 í gær, 17. Mars. Í þessu mati á flatarmáli er meiri óvissa en mælingum sem byggðar eru á ljósmyndum úr flugi. Ef veðuraðstæður leyfa verður farið í mælingaflug yfir gosstöðvarnar síðar í dag sem gæfi nákvæmari tölur um flatarmál en einnig rúmmál hraunsins.

Veðurspá Veðurstofu Íslands

Veðurspá fram eftir degi er suðaustan- og austan 8-13 m/s á gosstöðvunum en síðan hægari sunnan og suðvestanátt. Gasmengun berst þá til norðvesturs og vesturs, en norðurs seinnipartinn. Talsverð óvissa er í styrk gasmengunar. Suðvestan 10-18 á morgun og mun gasmengunin þá fara til norðausturs. Ólíklegt er að gasmengun berist til höfuðborgarsvæðisins vegna hvassviðris. Hægt er að fylgjast með gasdreifingarspá hér.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila