
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Kára Stefánsson, lækni og fyrrverandi forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, í þættinum skipulagsmál, um áhrif umhverfis á líðan fólks. Kári sagði almenna skynsemi benda til þess að fólki liði betur þegar það gæti teygt úr sér, gengið um græn svæði og notið náttúrunnar. Fallegt og gróðursælt umhverfi, útsýni til fjalla og útivera væru að hans mati bráðholl. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Náttúruleg vellíðan er holl
Hjördís spurði hvað það væri við gras, gróður og náttúru sem skapaði vellíðan.
Kári sagði fegurð skapa ákveðna tilfinningu og vellíðan. Sú náttúrulega vellíðan sem fylgdi því að standa úti í náttúrunni og horfa á fegurð hennar væri holl og fólki gerði gott að ganga sem oftast á fallegum stöðum og njóta umhverfisins.
Hann lagði sérstaklega áherslu á að börn hefðu gott af grænum, opnum svæðum þar sem þau gætu hreyft sig og leikið sér.
Umhverfið hefur áhrif frá getnaði til grafar
Kári sagði manninn stöðugt verða fyrir áhrifum frá umhverfi sínu. Þau áhrif hæfust frá getnaði og héldu áfram alla ævina.
Umhverfi væri í þessu samhengi miklu meira en loftið sem fólk andar að sér eða maturinn sem það borðar. Þar skipti einnig máli hvernig nærumhverfið liti út, hvort fólk sæi til fjalla og hvort það hefði aðgang að gróðursælum svæðum. Eftir því sem fólk eldist hafi umhverfið haft fleiri tækifæri til að móta það.
Áhrifopinna svæða og þéttingu byggðar erfið rannsóknarefni
Kári skýrt fram að hann byggði þessi ummæli ekki á rannsóknum sínum sem læknir eða vísindamaður.
Áhrif opinna svæða og þéttingar byggðar væru erfið rannsóknarefni og ekki væri einfalt að búa til trausta vísindalega þekkingu um þau.
Afstaða hans byggðist því á almennri skynsemi og eigin upplifun. Hún væri engu að síður skýr: tækifæri til að ganga um fallegt, gróðursælt umhverfi, njóta útsýnis og vera úti í náttúrunni væri fólki til góðs.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
