Karlmaður lést eftir hnífaárás í Breiðholti – þrír handteknir

Karlmaður á fertugsaldri lést eftir líkamsárás í Breiðholti síðastliðna nótt. Tveir menn fundust alvarlega slasaðir utandyra, að talið er eftir hnífsstungur, og voru báðir fluttir á slysadeild. Annar þeirra var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna á sjúkrahúsið en hinn liggur á gjörgæsludeild. Þrír menn hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins.

Tilkynning um árásina barst lögreglu skömmu fyrir klukkan 1:30 í nótt. Lögreglumenn héldu þegar á vettvang þar sem mennirnir tveir reyndust vera með alvarlega áverka. Ástand mannsins sem liggur á gjörgæsludeild er stöðugt, samkvæmt upplýsingum lögreglu.

Þrír menn handteknir eftir umfangsmikla leit

Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna árásarinnar og hóf þegar leit að árásarmönnunum. Þrír menn voru handteknir skömmu síðar annars staðar í Breiðholti í tengslum við rannsókn málsins. Mennirnir þrír eru allir í haldi lögreglu. Rannsókn málsins stendur yfir og er enn sem komið er skammt á veg komin.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila