
Katrín Sigurjónsdóttir hóf í gær störf sem sveitarstjóri Þingeyjarsveitar. Hún tekur við starfinu af Margréti Hólm Valsdóttur, sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, sem hefur gegnt embættinu tímabundið frá því Gerður Sigtryggsdóttir lét af störfum í lok síðasta kjörtímabils.
Hlakkar til samstarfs og uppbyggingar
Katrín segist þakklát fyrir það traust sem sveitarstjórn hafi sýnt sér og hlakki til að hefja störf.
„Ég er glöð yfir að vera komin til starfa hjá Þingeyjarsveit eftir gott sumarfrí og er afar þakklát sveitarstjórn fyrir það traust sem hún sýnir mér. Ég hlakka til komandi samstarfs og til að vinna að uppbyggingu og þróun samfélagsins með sveitarstjórn og öflugum hópi starfsfólks,“ segir Katrín.
Hún segir fram undan að kynna sér fjölbreytt verkefni sveitarfélagsins og heimsækja stofnanir þess á næstu vikum til að kynnast starfseminni og daglegum verkefnum starfsfólks.
Katrín segist jafnframt hlakka til að taka þátt í félagslífi Þingeyjarsveitar og bendir á að það virðist vera í miklum blóma.
