
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Lilju Katrínu Gunnarsdóttur, útvarpskonu og Guðmund R. Einarsson, í síðdegisútvarpinu um fósturson þeirra, Guðna Alexander, sem lést tvítugur í janúar í fyrra. Guðmundur sagði það upplifun fjölskyldunnar að kerfið hefði brugðist góðum dreng sem átti lífið fram undan og að stofnanir hefðu ekki náð að hjálpa honum með þann vanda sem hann glímdi við. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Reyndu að breyta reiðinni í kærleika
Guðmundur sagði frá því að eftir andlát Guðna hefðu erfiðar tilfinningar beinst bæði að kerfinu og þeim sjálfum. Fjölskyldan hefði síðan reynt að beina þeirri orku í annað far, gera gott og halda nafni Guðna á lofti.
Lilja sagði sorginni einnig hafa fylgt samviskubit og stöðugar spurningar um hvort hægt hefði verið að gera eitthvað öðruvísi. Hún hefði áður átt erfitt með að trúa hversu miklar brotalamir gætu verið í málefnum barna en reynsla fjölskyldunnar hefði breytt þeirri sýn.
Hún nefndi að vandinn næði ekki aðeins til barna sem væru í mjög alvarlegum heimilisaðstæðum. Börn gætu jafnframt setið árum saman á biðlistum eftir greiningu eða aðstoð og hún taldi miklar brotalamir vera í kerfinu.
Kom sífellt meira inn í fjölskylduna
Arnþrúður bað Guðmund að segja frá því hvernig drengur Guðni hefði verið.
Guðmundur sagði Guðna hafa verið son yngri bróður síns, Snorra Vals, sem lést 29 ára eftir baráttu við fíkniefni. Guðni hefði lengi dvalið mikið hjá honum og eftir andlát föður síns orðið sífellt stærri hluti fjölskyldunnar. Börn Guðmundar hefðu litið á hann sem bróður sinn og Guðmundur reynt að koma honum í föðurstað.
Arnþrúður spurði hvernig æska Guðna hefði verið. Guðmundur sagði honum hafa fundist Guðni vart hafa fengið að eiga æsku og að hann hefði þurft að upplifa og sjá mjög erfiða hluti.
Aðstandendaaðstoðin hentaði ekki barninu
Guðmundur rifjaði upp að Guðni hefði aðeins verið 11 eða 12 ára þegar hann fór í aðstandendaaðstoð vegna veikinda í fjölskyldunni. Hann hefði á þeim aldri orðið þreyttur á því að ræða stöðugt um sjúkdóminn og langað einfaldlega að fá að lifa lífinu.
Arnþrúður spurði sérstaklega hvort hann hefði þá komið til SÁÁ sem ungur aðstandandi. Guðmundur staðfesti það og Lilja lagði áherslu á að slíkt umhverfi væri ekki staður fyrir börn.
Guðmundur tók undir það út frá eigin reynslu sem barn alkóhólista. Hann sagði mjög erfitt fyrir barn að vera sett í aðstæður þar sem það hittir fullorðið fólk sem það tengir við drykkju og þann óstöðugleika sem henni getur fylgt. Aðstoð fyrir börnin þyrfti að fara fram annars staðar.
Foreldrar og aðstandendur vita ekki hvert þeir eiga að leita
Arnþrúður spurði hvort staðan væri orðin sú að foreldrar og aðstandendur barna í miklum vanda vissu einfaldlega ekki hvert þeir ættu að leita.
Guðmundur sagði margar góðar hugmyndir koma fram frá stjórnmálamönnum en vandinn væri að þær yrðu ekki að veruleika. Slíkar hugmyndir kæmu gjarnan fram fyrir kosningar en gleymdust síðan.
Reynsla þeirra Lilju af Guðna hefði kennt þeim hversu erfitt getur verið fyrir fjölskyldu að finna úrræði þegar vandi barns fellur ekki skýrt undir þau kerfi sem fyrir eru. Þau leggja áherslu á að börn þurfi fyrst og fremst fólk sem hlustar, tekur utan um þau og bregst við áður en vandinn verður enn meiri.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
