Kjartan: Ísland á að halda fullu forræði yfir innflytjendamálum

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Kjartan Magnússon, stjórnarmann í Ung gegn ESB,(Xnei.is) og varaformann ungliðahreyfingar Miðflokksins í dag, í síðdegisútvarpinu um innflytjendamál og hvernig þau tengjast umræðunni um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Kjartan sagði mikilvægt að ákvarðanir um landamæraeftirlit, hælismál og útlendingastefnu yrðu áfram teknar af íslenskum stjórnvöldum en ekki innan sameiginlegs kerfis Evrópusambandsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Gagnrýnir hælisleitendastefnu Evrópusambandsins

Kjartan sagði umræðu um innflytjendamál oft vera viðkvæma en taldi engu að síður mikilvægt að ræða hana í tengslum við ESB-aðild. Hann gagnrýndi stefnu Evrópusambandsins í hælisleitendamálum og sagði áherslu sambandsins hafa verið á að dreifa ábyrgð milli aðildarríkja fremur en að taka á orsökum vandans. Hann vísaði jafnframt til nýs hælisleitendapapakka ESB og taldi að þróunin gæti haft áhrif á Ísland ef landið gengi í sambandið.

Sérstaða Íslands kallar á sjálfstæðar ákvarðanir

Að mati Kjartans verður að taka mið af sérstöðu Íslands sem fámennrar eyþjóðar. Hann sagði að breytingar á fjölda innflytjenda gætu haft meiri áhrif hér en í stærri ríkjum Evrópu og því væri mikilvægt að Íslendingar hefðu áfram fullt forræði yfir eigin útlendingastefnu.

Hann taldi jafnframt að ákvarðanir um innflytjendamál ættu að ráðast af lýðræðislegum ákvörðunum hér á landi en ekki af sameiginlegri stefnumótun erlendra stofnana.

Ísland ákveði sjálft hvernig staðið sé að málum

Kjartan sagði innflytjendamál vera eitt af þeim sviðum sem sýndu hvers vegna fullveldi skipti máli í framkvæmd. Að hans mati ætti Ísland sjálft að ákveða hvernig staðið væri að landamæragæslu, hælismálum og dvalarleyfum. Hann sagði slíkar ákvarðanir hafa langtímaáhrif á íslenskt samfélag og því væri mikilvægt að ábyrgðin og ákvörðunarvaldið héldust innanlands.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila