Kjósendur Sjálfstæðisflokksins telja sig blekkta eftir meirihlutamyndun í Reykjavík

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Geir Waage, pastor emeritus í síðdegisútvarpinu í dag, um myndun nýs meirihluta í Reykjavík og viðbrögð kjósenda Sjálfstæðisflokksins við niðurstöðunni. Í viðtalinu kom fram að margir stuðningsmenn flokksins teldu sig hafa verið blekkta eftir kosningarnar þar sem þeir hefðu kosið flokkinn í þeirri trú að hann myndaði meirihluta með Miðflokknum og stæði fyrir stefnubreytingu í borginni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Kosningabarátta flokksins höfðaði til hægrisinnaðra kjósenda

Geir sagði marga hefðbundna kjósendur Sjálfstæðisflokksins, hafa verið orðna langþreytta á fyrri stefnu flokksins í Reykjavík og samstarfi hans við miðju- og vinstriflokka. Að hans mati hefði flokkurinn í aðdraganda kosninganna tekið upp harðari tón í málum eins og samgöngumálum og gagnrýni á fyrri borgarstjórn.

Hann sagði marga eldri sjálfstæðismenn hafa snúið aftur til flokksins í þeirri trú að Sjálfstæðisflokkurinn hygðist mynda meirihluta með Miðflokknum eftir kosningar. Sú niðurstaða hefði að hans mati verið eðlileg í ljósi þess að báðir flokkar hefðu styrkt stöðu sína í sveitarstjórnarkosningunum og margir túlkað úrslitin sem skýra hægri sveiflu meðal kjósenda.

Stuðningsmenn flokksins hefðu hins vegar orðið fyrir vonbrigðum þegar rætt var um „breiða samstöðu“ og áframhaldandi samstarf við flokka sem áður höfðu staðið að stjórn borgarinnar.

Telur fylgisflótta yfir til Miðflokksins fram undan

Geir sagði ákvörðunina geta haft alvarlegar pólitískar afleiðingar fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann taldi líklegt að margir kjósendur sem hefðu snúið aftur til flokksins í þessum kosningum, myndu yfirgefa hann á ný og leita til Miðflokksins ef samstarfið í Reykjavík héldi áfram á svipuðum nótum. Óánægjan væri ekki aðeins bundna við Reykjavík heldur endurspeglaði víðtækari gagnrýni innan flokksins á þátttöku hans í ríkisstjórnum og samstarfi við vinstri flokka á undanförnum árum. Að mati Geirs hefðu margir kjósendur upplifað að flokkurinn segði eitt í kosningabaráttu en framkvæmdi annað þegar kæmi að stjórnarmyndun.

Það að halda Miðflokknum utan samstarfs, stangist á við yfirlýsingar um víðsýni og breiða samstöðu í borgarstjórn að mati Geirs. Sú þróun gæti orðið til þess að fylgisflutningar frá Sjálfstæðisflokknum yfir til Miðflokksins yrðu enn meiri á komandi árum, sérstaklega ef kjósendur teldu sig hafa verið blekkta með stefnu flokksins fyrir kosningarnar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila