Klébergsskóli vannýttur þrátt fyrir möguleika á fjölgun íbúa á Kjalarnesi

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Kristinn Gylfa Jónsson, viðskiptafræðing og athafnamann og Ólaf Kr. Guðmundsson umferðarsérfræðing, í þættinum Skipulagsmál, um uppbyggingu og nýtingu innviða á Kjalarnesi. Kristinn vakti athygli á því að Klébergsskóli væri aðeins nýttur að hluta þrátt fyrir að hafa verið stækkaður fyrir rúmum 20 árum. Þá væri fráveitukerfi svæðisins tilbúið til að þjóna mun fjölmennari byggð en þar er nú. Hann sagði nær enga nýja íbúðabyggð hafa risið á Kjalarnesi undanfarin 25 ár þótt verulegir möguleikar væru til staðar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Aðeins um helmingur skólans nýttur

Klébergsskóli var stækkaður árið 2004 og getur samkvæmt upplýsingum Kristins tekið við um 220 nemendum. Þegar mest var sóttu um 198 börn skólann en undanfarin ár hefur nemendafjöldinn aðeins verið um 110–115.

Skólahúsnæðið er því ekki einu sinni 60% nýtt þrátt fyrir að öll nauðsynleg aðstaða sé fyrir hendi. Kristinn sagði þessa stöðu gera rekstur skólans óhagkvæman fyrir Reykjavíkurborg. Húsnæði og aðrir innviðir væru til staðar en nemendafjöldinn ekki nægur til að nýta aðstöðuna að fullu.

Hann nefndi að fjölga mætti íbúum svæðisins um 250–270 án þess að breyta núverandi skólahúsnæði. Einnig væri tiltölulega auðvelt að stækka skólann frekar ef þörf skapaðist síðar.

Fráveitukerfið getur þjónað byggð með um 2.000 íbúum

Kristinn benti á að fleiri stórar innviðaframkvæmdir hefðu þegar verið ráðist í á Kjalarnesi. Árið 2007 hófust framkvæmdir við fráveitustöð fyrir Grundarhverfi. Þær stöðvuðust um tíma en stöðin var að lokum fullgerð árið 2017.

Fráveitustöðin er staðsett neðan við félagsheimilið Fólkvang og hefur samkvæmt Kristni afkastagetu til að þjóna byggð með um 2.000 íbúum.

Núverandi íbúafjöldi í Grundarhverfi er hins vegar aðeins um 600 manns.

Þetta þýddi að hægt væri að fjölga íbúum verulega án þess að ráðast þyrfti strax í umfangsmikla uppbyggingu nýrrar fráveitu.

Uppbygging gæti styrkt verslun og þjónustu

Kristinn sagði að fjölgun íbúa væri einnig mikilvæg fyrir rekstur verslana og annarrar þjónustu á Kjalarnesi. Með nýrri byggð í landi Hofs gætu um 900–950 íbúar bæst við svæðið. Heildaríbúafjöldi Grundarhverfis og nýja hverfisins gæti þá orðið um 1.500 manns.

Slík fjölgun myndi breyta verulega forsendum fyrir verslunarrekstri og annarri þjónustu sem erfitt hefði verið að halda úti vegna fámennis.

Í Grundarhverfi væru þegar til staðar skóli, leikskóli, íþróttaaðstaða, sundlaug og félagsheimili. Ný íbúðabyggð gæti styrkt nýtingu þessara mannvirkja og skapað betri grundvöll fyrir frekari þjónustu.

Uppbyggingin setið á hakanum í 25 ár

Kristinn rifjaði upp að nær engin ný íbúðabyggð hefði risið á Kjalarnesi undanfarin 25 ár þótt svæðið hefði lengi verið skilgreint sem framtíðarbyggingarland.

Hann nefndi að Reykjavíkurborg hefði um aldamótin keypt landspildu við Jörfalæk þar sem nokkrar lóðir voru byggðar, en síðan hefði uppbyggingin nánast stöðvast.

Hjördís rifjaði upp sameiningu Kjalarneshrepps og Reykjavíkurborgar árið 1998 og þau fyrirheit sem þá voru gefin um aukna þjónustu og innviðaframkvæmdir. Kristinn sagði núverandi stöðu sýna hversu miklir möguleikar fælust í því að nýta betur þá innviði sem þegar hefðu verið byggðir upp.

Hann vonaðist til að breyttar áherslur í skipulagsmálum Reykjavíkur myndu leiða til þess að uppbygging á Kjalarnesi kæmist aftur af stað og að fjárfestingar í skólahúsnæði, fráveitu og annarri þjónustu nýttust betur.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila