
Kólumbíska skólaskipið ARC Gloria verður við Ægisgarð í Gömlu höfninni í Reykjavík dagana 16.–19. ágúst. Skipið verður opið almenningi alla 4 dagana og kostar ekkert að koma um borð. ARC Gloria er skólaskip kólumbíska sjóhersins og hefur siglt til hafna víða um heim. Skipið gegnir jafnframt hlutverki eins konar sendiherra Kólumbíu þar sem menning landsins og hefðir kólumbíska sjóhersins eru kynntar.
Opið í 4 daga
Almenningur getur skoðað skipið við Ægisgarð sunnudaginn 16. ágúst frá kl. 10:00 til 15:00. Mánudaginn 17. og þriðjudaginn 18. ágúst verður opið frá kl. 10:00 til 20:00 og miðvikudaginn 19. ágúst frá kl. 10:00 til 16:00.
Aðgangur er ókeypis og skipið leggur úr höfn kl. 19:00 miðvikudaginn 19. ágúst.
Guillermo Francisco Reyes González, sendiherra Kólumbíu gagnvart Íslandi og Svíþjóð, býður almenningi að nýta tækifærið til að stíga um borð, skoða seglskipið og kynnast starfsemi kólumbíska sjóhersins.
45 ár frá stofnun stjórnmálasambands
Heimsóknin tengist jafnframt 45 ára diplómatískum samskiptum Íslands og Kólumbíu og hátíðarhöldum vegna þjóðhátíðardags Kólumbíu.
Sunnudaginn 16. ágúst verður haldin heilög messa kl. 17:30 til minningar um fórnarlömb jarðskjálftans. Frá kl. 18:30 til 21:00 verða síðan hátíðarhöld vegna þjóðhátíðardagsins þar sem boðið verður upp á kólumbíska dansa, tónlist, smárétti og drykki.
Kólumbíska samfélaginu á Íslandi, fjölskyldum þeirra og vinum og öðrum sem vilja kynnast Kólumbíu og skoða ARC Gloria er boðið að taka þátt í dagskránni.
