
Frá og með 1. ágúst hækka komugjöld í heilsugæslu samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðuneytisins. Mánuði síðar, 1. september, verður jafnframt tekið upp sérstakt komugjald fyrir sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun sem verður utan greiðsluþátttökukerfis heilbrigðisþjónustunnar.
Heilbrigðisráðuneytið segir breytingarnar nauðsynlegar vegna verðlagsþróunar og aukins kostnaðar við rekstur heilbrigðisþjónustunnar, meðal annars vegna öldrunar þjóðarinnar. Bent er á að komugjöld í heilsugæslu hafi ekki verið uppfærð í 18 ár og hafi í raun lækkað að raunvirði á þeim tíma.
Komugjöld í heilsugæslu tvöfaldast
Almennt komugjald í heilsugæslu hækkar úr 500 krónum í 1.000 krónur. Sama hækkun gildir um sálfræðiþjónustu í heilsugæslu, leghálsskimanir og brjóstamyndatökur vegna krabbameinsleitar.
Komugjald utan dagvinnutíma hækkar úr 3.100 krónum í 3.500 krónur.
Aldraðir, öryrkjar og börn verða áfram undanþegin komugjöldum í heilsugæslu.
Jafnframt verður innheimt komugjald fyrir þjónustu sjúkrabíla á vettvangi þegar um er að ræða heilbrigðisþjónustu en ekki eiginlega sjúkraflutninga. Gjaldið verður ekki innheimt þegar sjúkrabíll er kallaður út og gjald fyrir sjúkraflutninga helst óbreytt.
Nýtt komugjald fyrir þjálfun
Frá 1. september verður tekið upp sérstakt komugjald fyrir sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun.
Almennt komugjald verður 1.500 krónur, 1.000 krónur fyrir aldraða og 500 krónur fyrir öryrkja. Börn yngri en 18 ára greiða ekkert gjald.
Gjaldið verður ekki hluti af afsláttarstofni greiðsluþátttökukerfis heilbrigðisþjónustunnar og verður því hið sama óháð því hversu oft einstaklingur sækir þjónustuna.
Samkvæmt ráðuneytinu hefur kostnaður vegna sjúkraþjálfunar aukist mun hraðar en gert var ráð fyrir eftir að nýr samningur við Félag sjúkraþjálfara tók gildi árið 2024. Ef ekkert yrði að gert stefnir fjárlagaliður þjálfunar í um 3,4 milljarða króna halla á þessu ári.
Tilvísun læknis verður felld niður
Í undirbúningi eru jafnframt breytingar á tilvísunarkerfi sjúkraþjálfunar. Gert er ráð fyrir að ekki verði lengur þörf á tilvísun læknis heldur meti sjúkraþjálfarar sjálfir þörf einstaklinga fyrir meðferð í nýju umsóknarferli hjá Sjúkratryggingum Íslands.
Heilbrigðisráðherra hyggst jafnframt hefja endurskoðun á greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustunnar með það að markmiði að styrkja jöfnuð, bæta aðgengi að þjónustu óháð efnahag og tryggja sjálfbæra fjármögnun heilbrigðiskerfisins til framtíðar.
