Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

Kona á fertugsaldri hlaut alvarlega áverka í líkamsárás í íbúð í fjölbýlishúsi í Kópavogi í gærkvöld. Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn á vettvangi og er í haldi lögreglu vegna rannsóknar málsins.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá þessu síðdegis í dag.

Maðurinn er grunaður um að hafa ráðist á konuna inni í íbúðinni. Hún var flutt á slysadeild til aðhlynningar en lögregla segir áverka hennar alvarlega.

Farið fram á gæsluvarðhald

Hinn grunaði var handtekinn á vettvangi og hefur verið í haldi lögreglu vegna rannsóknarinnar.

Lögregla hyggst fara fram á gæsluvarðhald yfir honum síðar í dag.

Ekki hafa verið veittar upplýsingar um nánari tildrög árásarinnar eða tengsl mannsins og konunnar.

Lögreglan segir ekki unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila