Kona flutt á slysadeild eftir köfunarslys í Silfru

"DCIM106GOPRO"

Kona var flutt á slysadeild eftir köfunarslys sem varð í Silfru í hádeginu í dag. Tildrög slyssins eru enn óljós en konan var við köfun í Silfru ásamt eiginmanni sínum þegar slysið varð. Þegar sjúkraflutningamenn komu á staðinn var konan ekki með meðvitund en hún komst fljótlega til meðvitundar og er líðan hennar stöðug.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila