
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vill að börnum undir 16 ára aldri verði bannaður aðgangur að samfélagsmiðlum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Á að banna aðgang barna undir 16 ára aldri að samfélagsmiðlum?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 56,57%
Nei: 34,85%
Hlutlaus: 8,59%
