
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að draga eigi til ábyrgðar þá sem trufla þingstörf í Alþingishúsinu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Á að draga til ábyrgðar þá sem trufla þingstörf í Alþingishúsinu?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 92,05%
Nei: 6,44%
Hlutlaus: 1,52%
