Könnun: Telja að Ísland eigi að ganga úr EES

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja rétt að Ísland gangi úr EES. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um liðna helgi.

Niðurstaðan var kynnt rétt fyrir hádegi í þættinum Línan laus en í þessari könnun var spurt: Á Ísland að ganga úr EES?

Niðurstaðan var eftirfarandi:


Já 79,7%

Nei 18,3%

Hlutlaus 2%


Atkvæði 704

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila