Könnun: Flestir hafa ákveðið hvað þeir kjósa í sveitarstjórnarkosningunum

Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu segist þegar hafa ákveðið hvaða flokk eða lista þeir ætli að kjósa í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Ert þú búin/n að ákveða hvaða flokk/lista þú ætlar að kjósa í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 76,73%
Nei: 16,36%
Ætla ekki að kjósa: 6,91%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila