Könnun: Fyrstu kappræðurnar á RÚV sæmilegar

Flestum þeim sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu fannst fyrstu kappræðurnar á milli forsetaframbjóðenda á RÚV vera sæmilegar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hvernig fannst þér fyrstu kappræður forsetaframbjóðenda á RÚV?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Sæmilegar: 47,1%

Góðar: 32,4%

Slæmar: 20,5%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila