Könnun: Ísland hætti að fjármagna vopnakaup til Úkraínu

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru á þeirri skoðun að Ísland eigi að hætta að fjármagna vopnakaup til Úkraínu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Á íslenska ríkið að hætta að fjármagna vopnakaup til Úkraínu?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 88,1%

Nei: 10%

Hlutlausir: 1,8%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila