Könnun: Íslendingar eiga ekki að stofna her

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru þeirrar skoðunar að Íslendingar eigi ekki að stofna eigin her. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Eiga Íslendingar að stofna eigin her?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 84,4%

Já 13,9%

Hlutlaus 1,9%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila