Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Íslensk stjórnvöld eigi að mótmæla meðferðinni á Julian Assange stofnanda Wikileaks.
Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Eiga Íslensk stjórnvöld að mótmæla meðferðinni á Julian Assange stofnanda Wikileaks?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 79,8%
Nei 17,9%
Hlutlaus 2,2%