Könnun: Íslenskunnátta ætti að vera skilyrði fyrir ríkisborgararétti

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að íslenskukunnátta ætti að vera skilyrði fyrir ríkisborgararétti. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á íslenskukunnátta að vera skilyrði fyrir ríkisborgararétti?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 95,5%

Nei: 4,2%

Hlutlaus: 0,8%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila