
Langflestir þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sé ekki lýðræðisleg stofnun. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Telur þú að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vera lýðræðislega stofnun?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 92,95%
Já: 5,70%
Hlutlaus: 1,34%
