Könnun: Langflestir telja umræðuna um Evrópumál ekki vera málefnalega

Langflestir þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að umræðan um Evrópumálin á Íslandi sé ekki málefnaleg. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Er umræðan um Evrópumálin á Íslandi málefnaleg?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 88,24%
Já: 8,82%
Hlutlaus: 2,94%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila