Könnun: Langflestir vilja meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í Reykjavík

Langflestir þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að Sjálfstæðisflokkurinn myndi meirihlutastjórn í Reykjavík með Miðflokknum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Á Sjálfstæðisflokkurinn að mynda meirihlutastjórn í Reykjavík með:

Niðurstaðan var eftirfarandi:

A. Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur: 91,19%
B. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn og Viðreisn: 5,42%
C. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking: 3,39%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila