Könnun: Margir búnir að ákveða hvern þeir ætla að kjósa í forsetakosningunum

Fjölmargir þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru búnir að gera upp hug sinn og ákveða hvern þeir ætla að kjósa í komandi forsetakosningum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ert þú búin/n að taka ákvörðun um hvern þú ætlar að kjósa sem forseta Íslands?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 72,8%

Nei: 24,2%

Kýs ekki: 3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila