Könnun: Margir glíma við greiðsluerfiðleika vegna hækkandi vaxta

Tæpur helmingur þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu glíma við greiðsluerfiðleika vegna vaxtahækkana bankanna. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni í morgun.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Glímir þú við greiðsluerfiðleika vegna hækkandi vaxta bankanna?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 48,8%
Já 44,2%
Hlutlaus 7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila